Fá ekki að segja fréttir af réttarhöldunum í dag 19. nóvember 2012 09:51 Annþór Kristján Karlsson leiddur fyrir dóminn.
Saksóknari fór fram að fréttaflutningur af skýrslustökum aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni, yrði takmarkaður. Hann vísaði þar í hagsmuni málsins. Ljóst er að aðalmeðferðin mun taka nokkra daga og saksóknari taldi það vera ótækt að vitni og aðrir aðilar málsins hefðu tækifæri til að kynna sér skýrslutöku annarra vitna í gegnum umfjöllun fjölmiðla. Verjendur lýstu ekki yfir skoðun á þessari beiðni en vildu engu að síður heyra rökstuðning saksóknara fyrir beiðninni. Dómari benti á að réttarhöldin væru opin en engu að síður þyrfti að taka tillit til hagsmunaaðila og þeirra vitna sem eiga að gefa skýrslu seinna í vikunni. Eftir stutt hlé var tilkynnt að fréttaflutningur af aðalmeðferðinni yrði sannarlega takmarkaður. Þetta þýðir að greina megi frá aðalmeðferðinni eftir skýrslutökur en ekki á meðan þær standa yfir. Dómara er heimilt samkvæmt annarri málsgrein 11.greinar sakamálalaga að leggja bann við því að greint sé frá því sem gerist í þinghaldi, en þar segir eftirfarandi: „Þótt þinghald sé háð í heyranda hljóði getur dómari bannað að skýrt verði frá því sem gerist þar ef ætla má að frásögn geti leitt til sakarspjalla eða valdið vandamönnum sakbornings, brotaþola eða öðrum sem ekki eru fyrir sökum hafðir þjáningum eða verulegum óþægindum. (...)" Þá kemur fram í 114.gr. laganna að á meðan ákærði gefi skýrslu skuli vitni í sama máli ekki hlýða á framburðinn. Eftir að dómari kynnti ákvörðun sína hóf hann aðalmeðferðina á því minna á reglur um vinnufrið. Sakborningarnir, þeir Annþór og Börkur, fengu að heyra það að þeim yrði tafarlaust vikið úr dómssal, yrðu þeir áminntir fyrir truflun á vinnufrið.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira