Århus hafði betur í Íslendingaslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2012 20:12 Arnar Freyr Jónsson í leik með Keflavík.
Það var Íslendingaslagur í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en þá mættust BC Århus og Værlöse BBK í framlengdri viðureign. Árósarliðið, með þá Arnar Frey Jónsson og Guðna Valentínusson innanborðs, höfðu að lokum sigur, 71-68. Axel Kárason leikur með Værlöse. Værlöse missti reyndar Axel af velli þar sem hann fékk sína fimmtu villu þegar fimmtán sekúndur voru eftir af fjórða leikhluta. Liðið var þá tveimur stigum yfir en leikmaðurinn sem Axel braut á fór á vítalínuna og jafnaði metin. Því þurfti að framlengja leikinn. Liðin skiptust á að vera í forystu í framlengingunni en Árósarliðið reyndist sterkari á lokasprettinum. Arnar Freyr setti niður eina þriggja stiga körfu í framlengingunni en hann var stigahæstur leikmanna Århus í leiknum með sautján stig, auk þess að gefa sex stoðsendingar og taka fjögur fráköst. Guðni skoraði ellefu stig en tók þar að auki tíu fráköst. Axel skoraði átta stig fyrir Værlöse og tók fimm fráköst. Pavel Ermolinskij og félagar hans í Norrköping Dolphins unnu mikilvægan sigur á Uppsala, 94-87, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Pavel spilaði í 33 mínútur og skoraði alls tólf stig í leiknum, auk þess að taka átta fráköst og gefa sex stoðsendingar. Hann nýtti öll fjögur skot sín innan þriggja stiga línunnar. Með sigrinum komst Norrköping í átta stig en liðið er í sjöunda sæti deildarinnar. Uppsala er í þriðja sæti með tíu stig.
Körfubolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira