Óhugur í Siglfirðingum eftir skjálftana Kristján Már Unnarsson skrifar 21. október 2012 20:21
Óhugur er í Siglfirðingum eftir öfluga skjálftahrinu frá því í gærkvöldi. Þar hrundi úr hillum í nótt og rúður sprungur þegar skjálfti upp á 5,6 stig reið yfir, sem er sá stærsti sem komið hefur norðanlands frá Kópaskersskjálftanum árið 1976. Jarðskjálftafræðingur segir að menn þurfi að búa sig undir stærri skjálfta nær Skjálfandaflóa. Öflugustu skjálftarnir hafa fundist um allt Norðurland og allt vestur til Vestfjarðar en mest hafa áhrifin verið á Siglufirði þar sem fólk gat lítið sofið frameftir nóttu. „Maður varð var við það í nótt að fólk var að fara út og keyra svona aðeins rúntinn um bæinn og róa sig niður," segir Guðmundur Skarphéðinsson, íbúi á Siglufirði. „Stærsti skjálftinn þarna í nótt var um hálftvö í nótt. Hann er um 5,6 stig. Það er mjög eðlilegt að fólk hafi fundið hann vel fyrir norðan," segir Ragnar Stefánsson, jarðfræðingur. Og heyrum lýsingarnar. „Það hristist hér allt og skalf og þegar að skjálftarnir voru að koma var næstum eins og flutningabíll hefði keyrt inn í húsið," segir Rósa Jónsdóttir frá Siglufirði. Í apótekinu mátti sjá fyrir innan gluggana að ýmislegt lauslegt hafði hrunið úr hillunum og sama gerðist í Samkaupum. „Þetta byrjaði svona um ellefu leytið, bara einn skjálfti. Ég hélt þetta væri bara búið þá en svo hélt þetta áfram í um tvo klukkutíma stanslaust," segir Þorsteinn Sveinsson, tónlistarkennari. En þá átti sá stóri eftir að koma, sem dýrin skyjuðu á undan mannfólkinu. „Ég er með hérna nokkra ketti. Rétt áður bara trylltust þeir alveg. Þeir voru þeir einu sem gerðu rétt, hlupu hérna undir skáp," segir Þorsteinn. „Það er óhugur í fólki, hræðsla. Maður heyrði af því í nótt að fólk var að taka sig saman. Þeir sem voru einir fluttu sig milli húsa. Það er auðvitað mjög mikilvægt að fólk sé saman þegar svona hlutir ganga yfir," segir Ingvar Erlingsson, forseti bæjarstjórnar Fjallabyggðar. Lausamunir brotnuð, rúður sprungu, kirkjuklukkur slóu og flestir urðu óttaslegnir. Í meðfylgjandi myndskeiði má heyra börn lýsa reynslu sinni af skjálftanum. Það er auðþekkt að beygur er í fólki gagnvart framhaldinu. Menn minnast Dalvíkurskjálftans 1934 þegar hús hrundu og Skagafjarðarskjálftans 1963 sem var um sjö stig. „Stóru skjálftarnir koma frekar á því sem kallast Húsavíkur-Flateyjar-misgengið. Þar þurfum við virkilega að gæta að okkur því þar er þetta farið að nálgast byggð. Hins vegar sjáum við ekkert sem bendir til að það verði stórskjálfti þar ennþá," segir Ragnar Stefánsson, jarðfræðingur.
Tengdar fréttir Rúmið titraði stanslaust Margir Siglfirðingar voru óttaslegnir í nótt þegar jarðskjálftarnir gengu yfir. Þar á meðal Birna Kristín Eiríksdóttir. 21. október 2012 13:59 Sá stærsti var 5,6 stig Stærstu skjálftarnir í nótt voru 5,6 að stærð og 4,8 að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 21. október 2012 16:57 Öflugasta skjálftahrina í tvo áratugi Jarðskjálftahrinan sem hefur gengið yfir Norðurland síðasta hálfa sólarhringinn er sú öflugasta sem hefur orðið á svæðinu í um tvo áratugi. Jarðskjálftafræðingur segir mikilvægt að fylgjast með framvindu mála þar sem jarðhræringarnar geti haft áhrif á skjálftavirkni annarra svæða. 21. október 2012 12:41 Hundruð jarðskjálfta mældust á Norðurlandi Nokkur hundruð jarðskjálftar hafa mælst á Norðurlandi frá því í gærkvöldi. Sá stærsti, að stærðinni 5,2, varð um hálftvöleytið í nótt en sá fannst um allt Norðurland og víðar. 21. október 2012 10:05 Allt nötrar og skelfur á Norðurlandi Töluverði skjálftavirkni hefur verið á Norðurlandi í kvöld. Hafa skjálftarnir verið allt að fjögur stig. Þeir hafa meðal annars fundist á Akureyri og á Siglufirði hafa bækur munir hrunið úr hillum. 21. október 2012 00:34 Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira
Rúmið titraði stanslaust Margir Siglfirðingar voru óttaslegnir í nótt þegar jarðskjálftarnir gengu yfir. Þar á meðal Birna Kristín Eiríksdóttir. 21. október 2012 13:59
Sá stærsti var 5,6 stig Stærstu skjálftarnir í nótt voru 5,6 að stærð og 4,8 að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 21. október 2012 16:57
Öflugasta skjálftahrina í tvo áratugi Jarðskjálftahrinan sem hefur gengið yfir Norðurland síðasta hálfa sólarhringinn er sú öflugasta sem hefur orðið á svæðinu í um tvo áratugi. Jarðskjálftafræðingur segir mikilvægt að fylgjast með framvindu mála þar sem jarðhræringarnar geti haft áhrif á skjálftavirkni annarra svæða. 21. október 2012 12:41
Hundruð jarðskjálfta mældust á Norðurlandi Nokkur hundruð jarðskjálftar hafa mælst á Norðurlandi frá því í gærkvöldi. Sá stærsti, að stærðinni 5,2, varð um hálftvöleytið í nótt en sá fannst um allt Norðurland og víðar. 21. október 2012 10:05
Allt nötrar og skelfur á Norðurlandi Töluverði skjálftavirkni hefur verið á Norðurlandi í kvöld. Hafa skjálftarnir verið allt að fjögur stig. Þeir hafa meðal annars fundist á Akureyri og á Siglufirði hafa bækur munir hrunið úr hillum. 21. október 2012 00:34