Íslenski boltinn

Logi Ólafsson í viðræðum við Stjörnuna?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Ólafsson.
Logi Ólafsson. Mynd/Daníel
Orðrómur er á kreiki um að forráðamenn Stjörnunnar hafi sett sig í samband við Loga Ólafsson um að taka við þjálfun liðsins.

Logi er margreyndur þjálfari og var síðast á mála hjá Selfossi, sem féll úr Pepsi-deild karla í haust. Samningur hans við Selfoss er útrunninn og honum því frjálst að ræða við hvaða félag sem er.

Óskar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, sagði að þjálfaramál félagsins myndu vonandi skýrast í vikunni og að félagið hefði rætt við Loga um nýjan samning. Hann vildi þó ekki segja hvort að félagið hefði rætt við aðra þjálfara.

Ekki hefur náðst í Almar Guðmundsson, formann knattspyrnudeildar Stjörnunnar, né Loga sjálfan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×