Landspítalanum verður hlíft í niðurskurði næsta árs Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. ágúst 2012 18:54 Framlög til Landspítalans skerðast ekki á fjárlögum næsta árs.
Landspítalanum verður hlíft í niðurskurði næsta árs, samkvæmt heimildum fréttastofu og fjárlög til spítalans verða því ekki skert. Niðurskurður og skattahækkanir eru samt framundan annars staðar í kerfinu ef markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög 2014 eiga að nást. Fjárlagahallinn nam 89 milljörðum króna í fyrra samkvæmt ríkisreikningi ársins 2011. Þetta eru þó fjármunir sem ekki þarfa ð hafa áhyggjur af í bili, venju samkvæmt, enda þurfa stjórnvöld að brúa fjárlagagat yfirstandandi árs á fjárlögum ársins 2013, en það er um 20 milljarða króna fjárlagagat. En hvar á að ná í 20 milljarða króna? Þegar stórt er spurt. Samkvæmt heimildum fréttastofu er gert ráð fyrir 1 prósents niðurskurði hjá öllum ráðuneytum. Niðurskurðurinn verður hins vegar ekki flatur í þeim skilningi að beitt verður mjög valkvæðum leiðum í sparnaðinum. Þetta þýðir að sumar deildir og svið sleppa alveg meðan skorið er niður annars staðar. Fjórir til fimm milljarðar króna sparast með þessum hætti. Þá standa eftir um 15 milljarðar króna og samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður þessu markmiði náð annars vegar með því að fresta verkefnum, t.d draga úr framkvæmdum, og koma í veg fyrir nýja útgjaldaliði. Þá verður afganginum náð með nýjum sköttum, en þetta verða sértækir skattar, samkvæmt heimildum fréttastofu og er ekki gert ráð fyrir neinum almennum hækkunum á tekjuskatti einstaklinga eða fyrirtækja í samræmi við heiðursmannasamkomulag sem gert var við undirritun síðustu kjarasamninga. Sérhæfðir skattar af þessu tagi mun ganga langt í brúa bilið en reikna má með að ekki takist að loka fjárlagagatinu að fullu þar sem ekki er stefnt að hallalausum fjárlögum fyrr en árið 2014.Fyrsta sinn í mörg ár sem spítalinn er í skjóli Skorið verður niður til velferðarmála sem fyrr, enda málaflokkurinn stærsti útgjaldaliður ríkisins. Ekki verður um flatan niðurskurð að ræða og þannig verða framlög til Landspítalans ekki skert. Það verður í fyrsta sinn í mörg ár sem spítalinn sleppur við niðurskurð. Stjórnvöld virðast því að hafa svarað ákalli Björns Zoëga, forstjóra spítalans, sem hefur sagt niðurskurðinn kominn að þolmörkum og það fyrir löngu síðan enda hafa gæði þjónustu spítalans verið skert verulega á undanförnum tveimur árum. Björn Zoëga sagði í samtali við fréttastofu að hann væri ánægður með þann skilning stjórnvalda að spítalinn þyldi ekki meira. Hann sagðist samt hafa verið að vonast eftir auknum framlögum til að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar eins og á nýjum tækjabúnaði sem kominn er til ára sinna á mörgum deildum. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, var ekki tilbúinn að svara því í samtali við fréttastofu hvar áherslur myndu birtast í niðurskurði í velferðarmálum en stjórnvöld væru komin í gegnum erfiðustu aðhaldsaðgerðirnar og nú væri verið að skoða hvernig styrkja mætti málaflokkinn. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira