Fá að velja sér aðstoðarmenn sjálf Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 9. ágúst 2012 12:05
Fötluðu fólki í Reykjavík og á Seltjarnarnesi gefst nú kostur á að taka þátt í tveggja ára tilraunarverkefni þar sem það fær greiðslur í stað þjónustu og getur þar með valið aðstoðarfólk sitt sjálft og ákveðið hvernig það nýtist. Þetta er framtíðarsýn Reykjavíkurborgar og kjarninn í sérstöku þróunar- og tilraunaverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð þar sem fötluðum er boðið upp á val um þjónustu. Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að verkefnið verði lögbundið frá árinu 2014. „Þá fellur niður sú þjónusta sem fólk hefur í dag samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og fólk fær í stað fjármagn og ráðstafar því að eigin ósk til aðstoðarfólks sem það sjálft stýrir. Þetta hefur verið ósk fatlaðra til langs tíma." Á vef Reykjavíkurborgar hefur þegar verið auglýst eftir þátttakendum en umsóknarfrestur er til og með 10.september. Engin takmörk eru á fjölda þátttakenda að sögn Bjarkar. Gert er ráð fyrir tveggja ára samkomulagi á milli umsækjandans og borgarinnar um stuðningsþörfina og verða greiðslur í samræmi við það. „Þetta geta orðið bæði minni samningar og eins fólk sem þarf sólarhrings þjónustu til að fá aðstoð í sínu lífi. Það mun fá heilmiklar greiðslur en þetta er kannski þjónusta sem margir þekkja í dag í gegnum bíómyndina Intouchables sem tugir þúsunda Íslendinga hafa sem betur fer séð. Og það er svona dæmi um notendastýrða persónulega aðstoð og ég vona að við fáum einhver sólskinsdæmi í Reykjavík eins og sú mynd sýnir," segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira