Snorri Steinn: Skemmtilegra með landsliðinu en félagsliðinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júlí 2012 21:45
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, segir æfingaleikina gegn Argentínumönnum um á laugardag og mánudag kærkomna í undirbúnigi liðsins fyrir Ólympíuleikana í London. Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik sínum á leikunum en næsti andstæðingur þar á eftir er lið Túnis. Íslenska liðið marði sigur á Túnis á æfingamóti í Frakklandi um síðustu helgi. Snorri Steinn segir andann í landsliðinu frábæran líkt og fyrir fjórum árum þegar íslenska liðið vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking. „Andinn er frábær og stemmningin frábær. Auðvitað er þetta aðeins breytt lið en kjarninn er sá sami. Ég held að allir séu ánægðir með að fara á leikana sem eru forréttindi og svo líka að vera heima og æfa með landsliðinu," segir Snorri sem segir skemmtilegra að æfa með strákunum í landsliðinu en mæta til æfinga í atvinnumennskunni. „Flestir segja að það sé skemmtilegra en að æfa með liðunum úti án þess að ég sé að hrauna of mikið yfir þau lið," segir Snorri. Snorri segir að líkja mætti því við slys ef íslenska liðið kæmist ekki upp úr riðli sínum á Ólympíuleikunum. „Það væri slys. Við getum kvittað undir það án þess að sýna hroka. Það er klárt að við ætlum upp úr riðlinum og meira til. En þetta er langur vegur og við þurfum að vera á tánum frá byrjun."
Handbolti Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira