Tilboð í Vaðlaheiðargöng að renna út - í annað sinn Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júní 2012 14:45 Göng undir Vaðlaheiði stytta leiðina um 16 kílómetra. Ökumenn fá áfram val um 325 metra háan fjallveg um Víkurskarð.
Framlengt tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga rennur út eftir fjóra daga, þann 15. júní. Vegagerðin hefur farið þess á leit við lægstbjóðendur, ÍAV og Marti, að þeir framlengi tilboðið. Átta mánuðir eru nú liðnir frá því tilboðin voru opnuð en ÍAV og Marti buðust til að vinna verkið fyrir 8.853 milljónir króna. Það var eina tilboðið undir kostnaðaráætlun og 636 milljónum króna lægra en næstlægsta boð. Þegar tilboðin voru opnuð þann 11. október í haust vonaðist fulltrúi IAV og Marti til að geta hafið framkvæmdir fljótlega eftir áramót. Sú von rættist ekki, efasemdir voru á Alþingi um að veggjöld stæðu undir verkefninu, og þann 15. febrúar féllust verktakarnir á ósk um að framlengja tilboðið um fjóra mánuði. Frá ÍAV fengust þau svör í dag að ósk Vegagerðarinnar um frekari framlengingu tilboðs yrði svarað fyrir 15. júní. Með samþykkt fjáraukalaga þann 17. nóvember síðastliðinn hafði Alþingi veitt Steingrími J. Sigfússyni, þáverandi fjármálaráðherra, heimild til að ganga frá samningum um Vaðlaheiðargöng og kom þar fram í atkvæðagreiðslu þingmeirihluti fyrir málinu. Þung andstaða birtist hins vegar áfram gegn Vaðlaheiðargöngum á Alþingi, ekki síst frá forystumönnum Vinstri grænna, Ögmundi Jónassyni, ráðherra vegamála, og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, formanni umhverfis- og samgöngunefndar. Fór svo að fjármálaráðherra treysti sér ekki til að ganga frá lánsfjármögnun, án enn skýrari heimildar þingsins. Kom það í hlut nýs fjármálaráðherra, Oddnýjar Harðardóttur, að leggja fram sjálfstætt stjórnarfrumvarp um heimild til ráðherra að undirrita lánasamning um Vaðlaheiðargöng. Það mál bíður nú afgreiðslu Alþingis og var til annarar umræðu fyrir þremur vikum. Þeirri umræðu er ekki lokið en málið á síðan eftir að ganga til nefndar og til þriðju umræðu. Óvíst er um málslok og þannig eru Vaðlaheiðargöng ekki meðal 19 þingmála á dagskrá þingfundar í dag.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira