Innlent

Spilarinn enn ófundinn - keypti miðann með reiðufé

BBI skrifar
Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspár.
Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspár. Mynd/Stefán
Sá lukkunnar pamfíll sem vann 73 milljónir í lottóinu síðustu helgi hefur ekki enn gefið sig fram. Vinningurinn er því enn óhreyfður.

Íslensk Getspá hvetur alla til að fara vel yfir miðana sína.

„Við viljum að vinningurinn fari út," segir Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. „Það er okkar markmið að fólk sem er að styðja við þennan góða málstað fái þá vinninga sem það vinnur."

Oft er hægt að rekja vinningsmiðann til viðkomandi aðila í gegnum sölukerfið, þ.e. ef hann er keyptur með kreditkorti eða í áskrift. Nú virðist miðinn hins vegar hafa verið greiddur með reiðufé.

„Við vitum ekkert um viðkomandi aðila nema hann keypti miðann sinn í Leirunesti á Akureyri og borgaði með peningum," segir Stefán.

Ef viðkomandi vinningshafi sækir ekki vinninginn sinn innan árs fyrnist miðinn og vinningurinn rennur til eignaraðila Getspárinnar sem eru Öryrkjabandalagið, Íþrótta- og Ólimpíusambandið og Ungmennafélag Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×