Heldur upp á 50 ára afmælið fyrir norðan 14. júní 2012 13:25 Tom Cruise og Katie Holmes gengu í það heilaga þann 28. nóvember árið 2006.
Stórleikarinn Tom Cruise ætlar að halda upp á fimmtugsafmælið sitt í glæsivillunni Hrafnabjörgum á Vaðlaheiði í sumar. Talið er að hann og fjölskylda hans verði komin hingað til lands um helgina. Frá þessu greinir Akureyri Vikublað í dag. Þar er fullyrt er að Thomas Martin Seiz, svissneski auðkýfingurinn sem keypti Hrafnabjörg, sem áður var lúxusvilla Jóhannesar í Bónus, hafi leigt Hollywood leikaranum Tom Cruise hús sitt. Tom hyggst verja nokkrum vikum á Íslandi í sumar við tökur á kvikmyndinni Oblivion. Þá segir að iðnaðarmenn hafi unnið hörðum höndum í húsinu og gert gagngerar breytingar svo leikarinn uni sér betur í Vaðlaheiðinni. Von er á þotu bráðlega með húsgögnum og búnaði sem Cruise hyggist nota á meðan á dvöl stendur. Oblivion verður meðal annars tekin upp á Jökulheimaleið, sunnan við Drekavatn að því er segir á vefnum dfs.is. Þá segist DV hafa heimildir fyrir því að tökur á kvikmyndinni eigi að hefjast í Hrossaborgum í Mývatnssveit á mánudag. Tom Cruise greindi sjálfur frá því í bandaríska tímaritinu Playboy fyrir skömmu að hann ætlaði að vera hér á landi á fimmtugsafmæli sínu 3. júlí vegna upptöku á kvikmyndinni Oblivion hér á landi. Fréttavefurinn mbl.is greinir svo frá því í dag að hann og fjölskylda hans verði á Íslandi um helgina en ekki liggi fyrir hvort leikarinn sé þegar kominn til landsins.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fleiri fréttir Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Sjá meira