Lögreglan kölluð út vegna háværra klósettferða 15. júní 2012 17:53
Því miður gengur ekki öllum jafnvel að lifa í sátt og samlyndi við nágranna sína. Þessa dagana er lögreglan annað slagið að sinna útköllum, sem kalla má árstíðabundin. Þetta snýr m.a. að garðslætti en almenna reglan er sú að óviðeigandi er slá blettinn mjög snemma á morgnana eða seint á kvöldin. Garðsláttur að næturlagi er sömuleiðis afleit hugmynd og pottþétt að slíkt endar með afskiptum lögreglu, eins og raunin varð á í Kópavogi á dögunum. Það er líka óskynsamlegt að fara í annarra manna garða og saga niður tré, jafnvel þótt manni finnist þau skyggja á sólina, sem ætti að skína í manns eigin garði en þannig mál kom upp í Háaleitishverfi fyrir ekki ýkja löngu. Furðuvel gengur samt að sjatla málin á vettvangi en á því eru vissulega undantekningar. Ágreiningur tengist oft brölti fólks að næturlagi en stundum er fótavistin algerlega nauðsynleg, t.d. þegar náttúran kallar. Að pissa í klósettið á nóttunni er auðvitað ekki lögreglumál en verður það þegar nágranninn hringir í 112 og kvartar yfir því að næturró hans sé raskað þar sem klósettsetunni á efri hæðinni, eða neðri hæðinni ef því er skipta, var lokað svo harkalega að ónæði hlaust af. Eins og gefur að skilja getur sönnunarbyrðin verið dálítið flókin í þessum tilvikum en lögreglumenn á vettvangi reyna alltaf sitt besta svo allir skilji sáttir. Lögreglan sinnti þessháttar útkalli í úthverfi á dögunum en þar var um mikinn ágreining nágranna að ræða. Lögreglumenn reyndu hvað þeir gátu að leiðbeina um hvernig mögulega væri hægt að gera klósettferðina hljóðlátari og hurfu síðan til annarra verka. Engum sögum fer af því hvort leiðbeiningar þeirra báru árangur..
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira