Innlent

Íslenska gulrófan óvenju góð

BBI skrifar
Fólki finnst skoskar rófur vondar. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Íslenskar gulrófur þykja hins vegar óvenju góðar.

Hrafnkell Karlsson, formaður gulrófnafélagsins, sagði í dag frá rannsókn sem var gerð fyrir nokkrum árum. Þar voru 14 tilbrigði gulrófna borin saman og óháðir sérfræðingar mátu gæði þeirra. „Það skemmtilega við þessa rannsókn að við (íslenskir gulrófubændur) vorum bæði með bragðbestu rófurnar og útlitsfegurstu," sagði Hrafnkell.

Íslensk veðrátta, ómengaður jarðvegur og vatnið gerir það að verkum að rófurnar vaxa hægar en annars staðar og verða betri.

Undanfarin ár hefur yfirleitt tekist að bjóða upp á íslenskar rófur í verslunum allt árið. Þar sem við búum við íslenska veðráttu hefur það ekki alltaf tekist. Maí og júní reyndust rófubændum erfiðir.

Hér má hlusta á umfjöllun um rófur í Reykjavík Síðdegis í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×