Enski boltinn

Nani gæti farið frá Man. Utd

Framtíð Portúgalans Nani hjá Man. Utd er í óvissu og svo gæti farið að hann færi frá félaginu. Hann er í samningaviðræðum við Man. Utd en heldur sínum möguleikum opnum.

Nani er búinn að vera í herbúðum Man. Utd síðan 2007 er hann var keyptur frá Sporting Lisbon.

"Ég er mjög ánægður hjá Man. Utd en ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Nú mun ég fara yfir mína möguleika," sagði Nani.

"Fótbolti er ekki bara á Englandi og Spáni. Það er líka hægt að ná árangri í öðrum löndum. Umbinn minn er að vinna í málunum. Við erum búnir að senda Man. Utd gagntilboð og bíðum eftir svari."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×