Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp VG skrifar 2. júní 2012 14:29 Friðrik J. Arngrímsson „
Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. Öll aðildarfélög LÍÚ hafa ákveðið að beina því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, er því óhætt að segja að nær allur skipafloti Íslands muni liggja í höfn að minnsta kosti út vikuna. Friðrik bendir á að um tímabundna aðgerð sér að ræða. „Það stefnir í að skipin verða í landi í næstu viku í þetta skiptið," segir Friðrik sem útilokar ekki lengri mótmæli síðar, án þess að nokkur ákvörðun hafi verið tekin um það að svo komnu máli. Friðrik segir að útvegsmenn séu afar ósáttir við frumvörp ríkisstjórnarinnar enda muni þau hafa mjög alvarleg áhrif á íslenskan sjávarútveg eins og fram komi í fjölmörgum umsögnum um þau. Spurður hvort aðgerðin hafi ekki mikil áhrif á önnur fyrirtæki og valdi töluverðu raski svarar Friðrik því til að þarna sé um heilmikla aðgerða að ræða. Friðrik segir að ekkert samtal sé á milli LÍÚ og ríkisstjórnarinnar. Spurður hvað útvegsmenn vilji fá út úr aðgerðunum svarar Friðrik: „Við vonumst til þess að það verði sest niður og stjórnvöld setji vinnu af stað með okkur, stjórnarandstöðunni, sveitarfélögunum og fleirum sem málið varðar með beinum hætti og það verði fundin lausn á málinu sem búið verður við."
Tengdar fréttir Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15