Björn Valur segir ákvörðun LÍÚ og aðildarfélaga ógeðfellda VG skrifar 2. júní 2012 15:53 Björn Valur Gíslason „
Í fyrsta lagi finnst mér þetta afar ógeðfellt af þeirra hálfu, sérstakleg í ljósi þess að þeir eru að nýta sér lögbundin frídag og hátíðardag sjómanna í þeim tilgangi að beita sjómönnum fyrir sér í þessari deilu," segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna um ákvörðun LÍÚ og aðildarfélög sambandsins um að halda ekki til veiða á mánudaginn eftir sjómannadag. Nú stefnir í að nær allur skipafloti Íslands verði bundin við bryggju út næstu viku en tímann ætla útgerðirnar og forsvarsmenn LÍÚ að nýta til þess að ræða við starfsmenn útgerðanna og kynna sjónarmið sín. Björn Valur segir ákvörðunina fordæmalausa og beinlínis fráleita. Spurður um gagnrýni Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, þar sem hann sagði ekkert samtal vera á milli ríkisstjórnarinnar og útvegsmanna, og hvort það væri ekki ráð að setjast niður með og finna lausn á deilunni í ljósi þess að nú virðist hún fara verulega harðnandi, svarar Björn Valur: „Það hefur aldrei staðið á stjórnvöldum að setjast niður með LÍÚ. Það er ekki hægt að kvarta yfir því með nokkurri sanngirni að þeir sem vildu koma að þessu máli hafi ekki fengið það." Björn Valur bætir við að á Íslandi sé það Alþingi sem setji lög, „en það kann að vera nýlunda fyrir útvegsmenn að þeir geri það ekki sjálfir, en þannig er það í dag," segir Björn Valur. Spurður hvort ríkisstjórnin sé ekki að ganga of langt með hugmyndum sínum um veiðigjaldið svarar Björn Valur því til að þeir einu sem gangi of langt í þessu máli séu útgerðarmennirnir sjálfir. „Það eru þeir sem eru að rjúfa öll samtöl með þessari ákvörðun." Björn Valur spyr svo hvað það sé sem þeir ætli að segja við starfsfólk sitt vikuna sem skipin liggja við bryggju. „Fyrst þeir ætla að gera þetta því ekki bjóða stjórnmálamönnum og fjölmiðlafólki á þessa fundi svo það geti farið fram almennileg umræða," segi Björn. „En þetta er fyrst og fremst ógeðfelld ákvörðun, óréttmæt og ósanngjörn gagnvart sjómönnum og hátíðisdeginum sjálfum. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við að sjómannadagurinn sé notaður með þessum hætti. Einnig að sjómönnum sé neitað að komast til vinnu á ný," segir Björn Valur og bætir við: „Sjómannadagurinn verður haldinn í skugga LÍÚ í ár."
Tengdar fréttir Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29 Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Skipin verða í höfn í viku - vilja breiða sátt um kvótafrumvörp "Við erum að tala um að nota næstu viku til þess að fara yfir stöðu málsins með starfsmönnum útgerðanna og fleiri aðilum sem málið varðar,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) en nær allur skipafloti Íslands mun ekki halda til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni við frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld og eru til meðferðar á Alþingi núna. 2. júní 2012 14:29
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2. júní 2012 13:15