Segist hata lögfræðinga 8. júní 2012 10:48 mynd/ vilhelm. "
Ég hata lögfræðinga," svaraði Guðgeir Guðmundsson þegar Skúli Eggert Sigurz spurði hvað gengi að honum á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum. Þá hafði Guðgeir stungið Skúla að minnsta kosti einu sinni í snarpri en gríðarlega ofbeldisfullri árás. Skúli Eggert bar vitni fyrir dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en Guðgeir hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann stakk Skúla fimm sinnum, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. Skúli missti 50 lítra af blóði í árásinni og undir læknishendi á eftir. Guðgeir segist muna glopótt eftir árásinni. Hann viti ekki nákvæmlega hvað honum gekk til þegar hann ákvað að taka með sér hníf á lögfræðistofuna kvöldið áður. Ástæðan fyrir því að hann fór á stofuna var sú að hann skuldaði 80 þúsund krónur vegna brunatryggingar. Honum hafði borist tilkynning um uppboð á íbúðinni hans sem olli honum slíku hugarangri að hann svaf nánast ekkert í tvær vikur að eigin sögn. Þegar hann hitti Skúla áttu sér lítil sem engin samskipti stað. Skúli lýsir því þannig að hann hafi strax séð að þarna færi frekar ógæfulegur maður, hann hafi samt boðið honum inn á skrifstofu til sín og farið yfir málin. Skúli gaf honum því afslátt upp á þrjátíu þúsund krónur, prentaði út blaðið, rétti Guðgeiri, sem virti það fyrir sér. Svo tókust þeir í hendur. Það var þá sem Guðgeir stakk Skúla. „Það var svo mikið hatur í fasinu hans,“ sagði Skúli sem gerði sér þá grein fyrir því að hann yrði að berjast fyrir lífi sínu. Þannig keyrði hann Guðgeir áfram og rann þannig í eigin blóði og féll í jörðina. Skömmu síðar kom Guðni inn og náði að stöðva árásina. Fyrir rétti sagðist Guðgeir ekki líka við lögfræðinga. Hann sagði reynslu fólks af lögfræðingum í kringum sig ávallt hafa verið mjög slæma. Þess má geta að Skúli er ekki lögfræðingur. Áfram verður réttað í málinu í dag. Vísir mun greina áfram frá réttarhöldunum.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Skotárás við Álaborg Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn Sjá meira