Innlent

Haldið sofandi eftir fall við Hamragarða

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Slysið varð við Hamragarða, sem eru skammt frá Seljalandsfossi.
Slysið varð við Hamragarða, sem eru skammt frá Seljalandsfossi. Mynd/Vilhelm
Ástand bresku konunnar sem féll ofan í gil við Hamragarða á mánudag er óbreytt.

Samkvæmt vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er konunni haldið sofandi. Slysið átti sér stað við tjaldstæði við Seljalandsfoss en hún var með hópi ferðamanna á göngu um svæðið.

Konan er stórslösuð eftir fallið. Ástand hennar er þó stöðugt og er hún ekki í lífshættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×