Skuldamál Regnbogabarna fyrir dóm 23. maí 2012 12:15 Hörpu Lútersdóttur finnst Regnbogabörn hafa svikið sig Mynd úr safni
Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti hefur stefnt Regnbogabörnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina. Regnbogabörn fara fram á að málinu verði vísað frá dómi. Það var fyrir átta árum sem höfundur bókarinnar, Harpa Lúthersdóttir, gerði samkomulag við þáverandi framkvæmdastjóra samtakanna, Freyju Friðbjarnardóttur, um að gefa öllum börnum sem áttu að byrja í skóla haustið 2004 bókina að gjöf. Harpa lagði þá tvær milljónir í útgáfu bókarinnar og lét prenta fimm þúsund eintök. Ekkert varð þó af því að börnin fengju bókina, sem heitir „Má ég vera memm?" Stefna Hörpu á hendur Regnbogabörnum hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur og í gær fór fram málflutningur vegna frávísunarkröfu samtakanna. Harpa baðst undan viðtali þegar fréttastofa náði tali af henni í morgun, en hún segist undrandi á því að samtök sem berjast gegn einelti skuli ekki standa við skuldbindingar sínar. Ekki hafði verið gerður formlegur samningur við Hörpu en hún hefur undir höndum tölvupóstsamskipti sem verða lögð fyrir dóminn. Ekki náðist tal af Stefáni Karli Stefánssyni, stofnanda Regnbogabarna, í dag. Í samtali við Fréttablaðið í október sagði hann að samtökin hefðu boðið Hörpu að fá allar bækurnar til baka, auk fimm hundruð þúsunda króna greiðslu, en hún sætti sig ekki við þær málalyktir.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Sjá meira