Átján ára ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Erla Hlynsdóttir skrifar 23. maí 2012 18:45
Átján ára piltur hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Farþegi í bíl hans, Eyþór Darri Róbertsson, lést eftir alvarlegan árekstur. Pilturinn var próflaus þegar slysið varð. Eyþór Darri lést í ágúst á síðasta ári, sautján ára gamall, eftir að bíll sem hann var farþegi í var ekið á húsvegg á mótum Geirsgötu og Mýrargötu. Vitni stigu fram eftir áreksturinn og sögðu ökumanninn hafa verið í spyrnukeppni á ofsahraða. Móðir Eyþórs Darra, Lilja Huld Steinþórsdóttir, sagði í ítarlegu viðtali í síðasta mánuði, að rannsóknargögn málsins hefðu verið send til ríkissaksóknara. Þá sagði hún að lögregluskýrsla um slysið hafið verið um 200 blaðsíður, og þar af 20 blaðsíður aðeins um hraða bílsins. Ákæra ríkissaksóknara gegn piltinum verður þingfest í næstu viku í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auk manndráps af gáleysi er hann ákærður fyrir ýmis umferðarlagabrot. Við þingfestinguna þarf hann að lýsa yfir sekt eða sakleysi. Pilturinn vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa náði tali af honum í dag. Lilja Huld sagði í samtali við fréttastofu í morgun að hún hafi alltaf reiknað með því að gefin yrði út ákæra, en baðst annars undan viðtali.Sjá ítarlegt viðtal við Lilju Huld sem birtist í Íslandi í dag þann 24. apríl
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira