Sóldögg kemur fram á Bestu útihátíðinni 23. maí 2012 22:37 „
Það verður löðrandi nostalgía á Bestu útihátíðinni í sumar." Þetta segir Bergsveinn Arilíusson, forsprakki hljómsveitarinnar Sóldögg en hún mun koma saman eftir langt hlé á hátíðinni í sumar. Bergsveinn segir að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið snöggir að ákveða sig eftir að hafa rætt við aðstandendur Bestu útihátíðarinnar. „Okkur hefur ávallt liðið eins og Sóldögg hafi ekki sagt sitt síðasta — þarna er rétti vettvangurinn fyrir það." Síðasta plata hljómsveitarinnar kom út árið 2002. Síðan þá hafa hljómsveitarmeðlimirnir flestir snúið sér að öðrum verkefnum en hafa þó öðru hverju komið saman. Þar á meðal hefur Sóldögg komið fram í Rúmeníu og Hollandi. „Sóldögg var og mun ávallt vera tónleikahljómsveit, ekta útihátíðarband," segir Bergsveinn. Þá segir hann að Sóldögg muni heiðra þann hóp fólks sem ekki hafði aldur til að sækja tónleika hljómsveitarinnar á sínum tíma. „Þetta verður fyrir þá sem hlustuðu á plöturnar en fengu aldrei tækifæri til að koma á tónleikana okkar."Frá Bestu útihátíðinni í fyrra.Besta útihátíðin verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu, dagana 5. til 8 júlí. Er þetta í þriðja skipti sem hátíðin fer þar fram. „Hátíðin í fyrra gekk vonum framar og við vonumst til að hún verði enn glæsilegri í ár," segir Haraldur Ási Lárusson, aðstandandi Bestu útihátíðarinnar. Undirbúningur fyrir hátíðina stendur nú sem hæst. Þá hefur verið ákveðið að bæta degi við hátíðina en samkvæmt Haraldi verður boðið upp á „létta stemningu" á þessum síðasta degi hátíðarinnar. En Sóldögg er ekki eina hjómsveitin sem ætlar að rifja upp gamla takta á hátíðinni. „200.000 Naglbítar hafa staðfest komu sína í ár," segir Haraldur. „Þá höfum við staðfest þriðju hljómsveitina en flestir kannast við hana — við munum þó ekki opinbera þá hljómsveit strax." Hægt er að sjá tónlistarmyndband við lagið Svört sól með Sóldögg hér fyrir ofan.
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira