Innlent

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

VG og JHH skrifar
Sævar Sverrisson við þingfestingu málsins.
Sævar Sverrisson við þingfestingu málsins. mynd/egill
Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Geir Hlöðver Ericsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi.

Stærsti hluti málsins snerist um stórfellt smygl á fíkniefnum frá Rotterdam í Hollandi til Íslands síðastliðið haust. Efnin fundust í Straumsvík. Við rannsókn málsins lögðu lögreglumenn hald á tæp tíu kíló af amfetamíni, rúmlega átta þúsund töflur af MDMA og mikið magn stera.

Fleiri minni mál tengdust stóra fíkniefnamálinu og voru sex manns ákærðir í tengslum við þau. Auk tveggja fyrrgreindra var Sævar Þór Óskarsson dæmdur í níu mánaða fangelsi. Einn maðurinn var sýknaður af ákærunni og tveir voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×