Áhugi fyrir hjólaleigu að bandarískri fyrirmynd Hugrún Halldórsdóttir skrifar 26. maí 2012 21:00
Ný hjólaleiga í Denver hefur hvatt borgarbúar til að hjóla sem nemur fimmhundruð og tuttugu hringum í kringum Ísland á ári. Líkur eru á að svipuðu verkefni verði komið á laggirnar í Reykjavík innan nokkurra ára. Hjólaleigunni var komið á koppinn fyrir tveimur árum og nú má finna fimmhundruð hjól á fimmtíu og þremur stöðvum víðs vegar um þessa sexhundruðþúsundmanna borg. Á síðasta ári nýttu tvöhundruð þúsund sér fákana og hjóluðu 690 þúsund kílómetra eða um fimmhundruð og tuttugu sinnum í kringum Ísland. Þannig varð brennslan þrettán milljón kaloríur sem jafnast á við rúmlega fimmtíu þúsund hamborgara. Hjólreiðarnar skila ekki einungis góðri heilsu því áætlað er að hjólreiðamennirnir hafi komist hjá því að kaupa tæplega 1200 tonn af bensíni og olíu svo dæmi séu tekin en sá kostnaðurinn er brotabrot af því gjaldi sem ferðin á hjólunum kostar. „Ársmeðlimur getur notað kortið sitt mörgum sinnum á dag," segir Parry W. Burnap, framkvæmdastjóri Denver Bike Sharing. „Þrjú þúsund manns var með um 60% notkunarinnar. Fjörutíu þúsund manns var með restina af notkuninni." Félagið sem rekur leiguna nýtur styrkja frá einstaklingum, yfirvöldum og fyrirtækjum en eins og þið sjáið er töluvert um líflegar auglýsingar á hjólunum. „Þessi rekstur er ekki í hagnaðarskyni. Hann er nú í jafnvægi. Við höfum starfað í tvo vetur og hvað lausafé varðar erum við í góðum málum. Við ætlum að bæta við 27 stöðvum á þessu ári," segir Parry. Nokkrir einkaaðilar eru áhugasamir um að koma svipuðu verkefni á laggirnar hér á landi og hafa viðrað hugmyndir sínar við borgaryfirvöld. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi segir Reykjavíkurborg til í að taka þátt og greiða götur fyrir áhugasama. Undanfarin ár hefur verið unnið við uppbyggingu hjólreiðastíga í borginni og telur Gísli Marteinn það geta aukið líkur á að hjólaleiga líkt og í Denver og öðrum stórborgum verði að veruleika hér á landi.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira