Innlent

Grímuklæddur maður rændi Kaffivagninn

Grímuklæddur maður réðst inn á Kaffivagninn á Granda í dag og ógnaði afgreiðslustúlku. Hann krafist þess að hún léti sig hafa pening. Hann stökk síðan yfir borðið og hafði einhvern pening með sér Fjöldi fólks var inni á staðnum þegar þetta gerðist. Maðurinn hljóp síðan út að bryggju en þar var hann króaður af þangað til lögreglan kom á staðinn. Þá kastaði hann peningunum í sjóinn. Maðurinn mun hafa verið í mjög annarlegu ástandi. Stefán Kristjánsson, eigandi Kaffivagnsins, segir að þetta sé í fyrsta sinn í þrjátíu ár sem vopnað rán er framið á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×