Segir stjórnarmenn ekki þurfa að segja af sér Höskuldur Kári Schram skrifar 17. nóvember 2012 18:53
Magnús L. Sveinsson, stjórnarformaður Eirar, segir að úrsögn Hafsteins Pálssonar úr stjórn félagsins setji ekki þrýsting á aðra stjórnarmenn að gera slíkt hið sama. Afsögn Hafsteins megi rekja til þess að hann njóti ekki lengur trausts þeirra sem tilefndu hann á sínum tíma. Fulltrúaráð Eirar fundaði um fjárhagsstöðu félagsins í gærkvöldi en ráðið er skipað fulltrúum eigenda. Eins og fram hefur komið í fréttum stöðvar tvö glímir félagið við mikla fjárhagsörðugleika og er tæknilega gjaldþrota. Hafsteinn Pálsson sagði sig úr stjórn Eirar á fundinum í gæ en hann telur nauðysnlegt að stjórnin öll endurnýi umboð sitt í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað undanfarið. Magnús L. Sveinsson, stjórnarformaður, segir ekkert kalla á afsögn annarra stjórnarmeðlima. „Það er rétt að taka það fram að einn sem hefur sagt af sér hann Hafsteinn Pálsson hann nýtur ekki trausts þeirra sem tilefndu hann á sínum tíma 1.004 og mér sýnist að hann vilji flytja það vantraust yfir á aðra stjórnarmenn og það gengur auðvitað ekki," segir hann. Magnús segir að stjórnin hafi ekki vitað annað að rekstur félagsins væri í lagi. „Við treystum forstjóranum og vissum ekki annað en að þetta væri í fína lagi og ég vil vekja athygli á því að ríkisendurskoðun fór yfir þetta allt saman og gerði aldrei athugasemd þannig að það er ekki fyrr en nýr forstjóri kemur og fer yfir þetta að hann stoppar við og segir hér er vandi sem við verðum að stoppa við," bætir hann við. Magnús segir að ríkisendurskoðun hafi aldrei gert athugasemdir við bókhald félagsins. „Ekki gert athugasemdir við veðsetningar á íbúðunum, íbúðalánasjóður ekki heldur. Lífeyrissjóðirnir sem lánuðu gerðu ekki athugasemdir við veðin. Áttum við í stjórninni að sjá það sem þeir ekki sáu? Þessir samningar voru ekki á okkar borði. það breytir því að þetta er mikill vandi og við eigum að takast á við hann og leysa hann þannig að allir haldi sínu," segir hann. Ég vil hins vegar láta það koma skýrt hér fram í þessu viðtali að það hefur enginn maður sem hefur átt viðskipti við Eir, íbúðakaupanda eða aðrir, tapað einni einustu krónu. það hafa allir haldið sínu, en vandinn er til staðar og við erum að reyna að leysa hann," segir hann að lokum.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Sjá meira