Sóley búin að prófa Boot Camp: "Takk samt fyrir boðið" Boði Logason skrifar 7. maí 2012 20:36 Sóley Tómasdóttir er búin að prófa Boot Camp. Eigandi Boot Camp bauð henni að koma í tíma í dag. mynd/anton brink „
Ég er búin að prófa Boot Camp, ég gerði það árið 2007. Þannig takk samt, ég er í fínu formi þrátt fyrir að vera ekki hjá þeim," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna í borgarstjórn. Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eiganda Boot Camp, skoraði á Sóleyju að koma og prufa einn tíma hjá þeim í samtali við Vísi í dag. Ástæðan var sú að Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. VG telur að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðarsniði, eins og það er orðað í bókun þeirra. Arnaldur Birgir segir það sprenghlægilegt enda sé Boot Camp eins og hver önnur líkamsrækt. „Þetta er bara eitt orð í bókuninni sem varðar þá í raun og veru. Aðalmálið er náttúrlega að við teljum þessa starfsemi ekki samræmast þeim skipulagslegu forsendum sem við viljum hafa að leiðarljósi," segir Sóley. Stefnt er að því að opna Boot Camp í Elliðaárdal í næsta mánuði. Tillagan hefur ekki verið afgreidd í borgarstjórn er gert er ráð fyrir því að það verði gert fljótlega.
Tengdar fréttir Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. DV greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Í frétt DV kom jafnframt fram að kaupin væru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. 7. maí 2012 14:00 Eigandi Boot Camp býður Sóleyju í prufutíma Boot Camp er bara venjuleg líkamsræktarstöð og á ekkert skylt við hernað, segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eigenda Boot Camp, í samtali við Vísi. Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. Telja VG að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkasrækt með herbúðarsniði. 7. maí 2012 16:23 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira
Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. DV greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Í frétt DV kom jafnframt fram að kaupin væru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. 7. maí 2012 14:00
Eigandi Boot Camp býður Sóleyju í prufutíma Boot Camp er bara venjuleg líkamsræktarstöð og á ekkert skylt við hernað, segir Arnaldur Birgir Konráðsson, annar eigenda Boot Camp, í samtali við Vísi. Vinstri græn hafa lagst gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í húsi Fornbílaklúbbsins á Rafstöðvarvegi. Telja VG að ekki fari vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkasrækt með herbúðarsniði. 7. maí 2012 16:23