Erlent

Myndir af Maddie notaðar til að auglýsa sumarfrí

Kate McCann er enn að leita að dóttur sinni.
Kate McCann er enn að leita að dóttur sinni.
Hjónin Kate og Gerry McCann upplifðu hrylling þegar þau áttuðu sig á því að síðasta myndin sem tekin var af Madeleine, dóttur þeirra, hafði verið notuð til að auglýsa sumarfrí í Portúgal. Það var ferðaskrifstofan lowcostholidays.com sem auglýsti ferðirnar á vefsíðunni VoucherDigg.

Ferðaþjónustufyrirtækið segist hins vegar ekki hafa neinn auglýsingasamning við vefsíðuna og viðurkenndi að það væri ósiðlegt að nota myndir af Maddie litlu. Clarence Mitchell, talsmaður McCann hjónanna, sagði við Daily Telegraph að lögmannsstofan Carter-Ruck hefði verið fengin til þess að krefjast þess að myndin yrði fjarlægð hið snarasta.

Sem kunnugt er hvafr Maddie McCann þegar hún var í sumarfríi með foreldrum sínum í Portúgal vorið 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×