AG fór létt með Barcelona á Parken Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. apríl 2012 20:01 Guðjón Valur skoraði fjögur mörk fyrir AG í kvöld. Mynd / AP
21 þúsund áhorfendur fylgdust með viðureign AG og Barcelona í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dönsku meistararnir áttu frábæran leik og unnu, 29-23. Aðsóknarmett var sett á Parken í kvöld en öll umgjörð leiksins var glæsileg. Stórskyttan Mikkel Hansen og markvörðurinn Kasper Hvidt fóru á kostum í leiknum. Hansen skoraði átta mörk og Hvidt varði á köflum glæsilega í leiknum. Hvidt lét þó skapið hlaupa með sig í gönur því hann fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútu leiksins þegar hann ýtti við danska landsliðsmanninum Jesper Nöddesbo, leikmanni Barcelona. Allir fjórir Íslendingarnir komust á blað í leiknum og spiluðu mjög vel, eins og allir í liði AG. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk, Ólafur Stefánsson og Arnór Atlason þrjú mörk hvor og Snorri Steinn Guðjónsson eitt. AG byrjaði vel og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins. Barcelona jafnaði en undir lok hálfleiksins náðu heimamenn að síga fram úr á ný. Staðan í hálfleik var 16-11. Börsungar náðu aldrei að ógna forystu AG að nokkru ráði í seinni hálfleik. Gestirnir skoruðu þó tvö mörk undir lokin og minnkuðu muninn í fimm mörk en Guðjón Valur skoraði síðasta mark leiksins á lokasekúndunum og sá til þess að AG fer með sex marka forystu í seinni leikinn. Liðin mætast í síðari leiknum í Barcelona á laugardaginn um næstu helgi.
Handbolti Mest lesið Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Fótbolti Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Fótbolti Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Fótbolti Segir hitann á HM hættulegan Fótbolti Belgar kveðja EM með sigri Fótbolti Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Fótbolti Fleiri fréttir Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Sjá meira