Reykjanesbær semur við Tölvumiðlun 17. apríl 2012 15:28 Art Schalk, sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar, og Guðrún Þorsteinsdóttir, starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær undirritaði nýlega samning við Tölvumiðlun um innleiðingu H3 heildarlausnar í mannauðsmálum og mun starfsþróunarsvið bæjarfélagsins nota H3 til að halda utan um öll mannauðsmál starfsmanna. Hjá bænum starfar afar fjölbreytt flóra 700 starfsmanna við ýmiss konar þjónustu í skólum, íþróttamannvirkjum, löggæslu, hafnarstarfsemi, söfnum, heilbrigðis- og ferðaþjónustu. Í tilkynningu segir Art Schalk, sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar, mikla ánægju með samninginn. „Reykjanesbær er á meðal stærstu sveitarfélaga landsins og erum við sannfærð um að H3 muni skapa mikið hagræði í mannauðsmálum sveitarfélagsins." Að sögn Guðrúnar Þorsteinsdóttur starfsþróunarstjóra mun H3 nýtast vel til að halda utan um fjölbreytta starfsemi Starfsþróunarsviðs Reykjanesbæjar; hraða og samræma vinnuferli og auðvelda þátttöku stjórnenda í mannauðsmálum. Guðrún segir kerfið uppfylla allar kröfur sveitarfélagsins. „Kerfið er mjög einfalt í notkun og við áætlum að það komi til með að spara starfsþróunarsviði og stjórnendum bæjarfélagsins margra daga vinnu við ráðningaferlið á álagstímum, enda hleypur fjöldi starfsumsókna á hundruðum, sérstaklega yfir sumartímann." Undir þetta tekur Þórey Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Reykjanesbæjar sem telur kerfið komi til með að skila miklum tímasparnaði ásamt því að auka þjónustu við bæjarbúa og starfsfólk sveitarfélagsins til muna. Um 400 íslensk fyrirtæki nota H3 lausnina, þar á meðal um 35 sveitarfélög. Tölvumiðlun er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1985. Þar starfar samhentur hópur sérfræðinga sem þjónustar mörg hundruð ánægða notendur H3 heildarlausnarinnar, SFS fjárhagskerfisins auk annarra hugbúnaðarkerfa.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent