Viðskipti innlent

Reykjanesbær semur við Tölvumiðlun

Art Schalk, sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar, og Guðrún Þorsteinsdóttir, starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar.
Art Schalk, sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar, og Guðrún Þorsteinsdóttir, starfsþróunarstjóri Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær undirritaði nýlega samning við Tölvumiðlun um innleiðingu H3 heildarlausnar í mannauðsmálum og mun starfsþróunarsvið bæjarfélagsins nota H3 til að halda utan um öll mannauðsmál starfsmanna.

Hjá bænum starfar afar fjölbreytt flóra 700 starfsmanna við ýmiss konar þjónustu í skólum, íþróttamannvirkjum, löggæslu, hafnarstarfsemi, söfnum, heilbrigðis- og ferðaþjónustu.

Í tilkynningu segir Art Schalk, sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar, mikla ánægju með samninginn. „Reykjanesbær er á meðal stærstu sveitarfélaga landsins og erum við sannfærð um að H3 muni skapa mikið hagræði í mannauðsmálum sveitarfélagsins."

Að sögn Guðrúnar Þorsteinsdóttur starfsþróunarstjóra mun H3 nýtast vel til að halda utan um fjölbreytta starfsemi Starfsþróunarsviðs Reykjanesbæjar; hraða og samræma vinnuferli og auðvelda þátttöku stjórnenda í mannauðsmálum.

Guðrún segir kerfið uppfylla allar kröfur sveitarfélagsins. „Kerfið er mjög einfalt í notkun og við áætlum að það komi til með að spara starfsþróunarsviði og stjórnendum bæjarfélagsins margra daga vinnu við ráðningaferlið á álagstímum, enda hleypur fjöldi starfsumsókna á hundruðum, sérstaklega yfir sumartímann."

Undir þetta tekur Þórey Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Reykjanesbæjar sem telur kerfið komi til með að skila miklum tímasparnaði ásamt því að auka þjónustu við bæjarbúa og starfsfólk sveitarfélagsins til muna.

Um 400 íslensk fyrirtæki nota H3 lausnina, þar á meðal um 35 sveitarfélög. Tölvumiðlun er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1985. Þar starfar samhentur hópur sérfræðinga sem þjónustar mörg hundruð ánægða notendur H3 heildarlausnarinnar, SFS fjárhagskerfisins auk annarra hugbúnaðarkerfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×