Innlent

Fallist á gæsluvarðhald til 4. apríl

Mynd/Valli
Farið hefur verið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Guðgeiri Guðmundssyni sem stakk framkvæmdastjóra Lagastoðar og særði lífshættulega á mánudaginn var. Féllst dómari við héraðsdóm á þá kröfu lögreglu. Guðgeir var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna en nú fer lögregla fram á áframhaldandi varðhald á grundvelli almannahagsmuna.

Guðgeiri var einnig gert að sæta geðrannsókn og búist er við niðurstöðum úr henni innan fárra vikna.

Lögreglan fer nú fram á að Guðgeir verði úrskurðaður í varðhald til 4. apríl næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×