Knudsen um Kiel-liðið: Kannski besta félagslið allra tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2012 15:30 Michael V. Knudsen reynir hér að stoppa Aron Pálmarsson í leik Kiel og Flensburg. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Michael V. Knudsen, línumaður Flensborg og danska landsliðsins, var fengin til að segja skoðun sína á liði Kiel fyrir Meistaradeildarleikinn á móti AG Kaupmannahöfn um helgina. AG tekur á móti Kiel á sunnudaginn í úrslitaleik um efsta sætið í riðlinum en leikurinn verður sýndur beinni útsendingu á Sporttv.is klukkan 15.50 á sunnudaginn. „Þetta lið er allt annars eðlis en liðin sem AG er vanalega að spila við í dönsku deildinni. Þeir eru með virkilega gott lið, vel mannaðir í öllum stöðum og í raun með tvo heimsklassamenn í hverri stöðu," sagði Michael V. Knudsen við sporten.tv2.dk. „Leikmenn Kiel eru á góðum aldri og enginn þeirra er orðinn mjög gamall. Á sama tíma hafa þeir öðlast mikla reynslu. Leikmenn þeirra myndu styrkja öll lið í heiminum og þetta er mjög sérstakt lið," sagði Knudsen sem segir stærstu stjörnur Kiel-liðsins vera Thierry Omeyer, Filip Jicha, Daniel Narcisse og Kim Andersson. „Þeir spila vel saman og eru allt liðsmenn. Þeir eru allir frábærir leikmenn en gera líka aðra betri í kringum sig. Þetta er kannski besta félagslið allra tíma," sagði Knudsen um lærisveina Alfreðs Gíslasonar. Kiel er búið að vinna 21 leik í röð í þýsku úrvalsdeildinni og hefur aðeins tapað stigum í tveimur leikjum í Meistaradeildinni. Það er því ljóst á öllu að það bíður AG ekki auðvelt verkefni á sunnudaginn.
Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira