Kiel vann riðilinn á jafntefli í Danmörku Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. febrúar 2012 18:07 Aron átti góða innkomu í lið Kiel í seinni hálfleik. MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
AG Kaupmannahöfn og Kiel gerðu 24-24 jafntefli í lokaleik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í handbolta í dag. Kiel vann þar með D-riðilinn með 16 stig, stigi meira en AG og fær lið sem hafnaði í fjórða sæti í riðlum A, B eða C á meðan AG þarf að mæta liði sem hafnaði í þriðja sæti. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Kiel komst tvisvar tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik annars munaði aldrei meira en einu marki á liðunum. Staðan var jöfn í hálfleik 11-11. AG kom tvisvar tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik en annars var sagan sú sama, það var jafnt á öllum tölum. AG komst í 22-20 þegar enn voru tíu mínútur eftir af leiknum en þá hrundi sóknarleikur liðsins og fátt gekk upp. Það var þeim til happs að varnarleikur liðsins var hinn prýðilegasti. Kiel dugði jafntefli til að sigra riðilinn og komst liðið yfir þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Mikkel Hansen jafnaði metin á síðustu sekúndu leiksins og jafntefli staðreynd en það voru leikmenn Kiel sem fögnuðu í leikslok. Guðjón Valur Sigurðsson var markhæsti leikmaður vallarins með 8 mörk, Mikkel Hansen bætti við sex mörkum fyrir AG og Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu tvö mörk hvor. Arnór Atlason kom ekkert við sögu í leiknum. Kim Anderson var markahæstur í liði Kiel með fimm mörk líkt og Momir Ilic en öll mörk Ilic komu úr vítum. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark en hann lék mikilvægar mínútur seint í leiknum eftir að hafa hvílt allan fyrri hálfleikinn. Dregið verður í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar á þriðjudaginn.
Handbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira