Þórir Hergeirsson telur að Norðmenn vinni Ísland í kvöld 18. janúar 2012 15:00 Þórir Hergeirsson. Mynd/Pjetur „
Leikur Íslands og Króatíu var ekki eins góður og margir hafa sagt. Það er allt opið í viðureign Noregs og Íslands," segir Þórir Hergeirsson, þjálfari heimsmeistaraliðs Noregs í kvennahandboltanum. Flestir handboltasérfræðingar eru á þeirri skoðun að Íslendingar séu mun sigurstranglegri gegn Noregi þegar liðin mætast á EM í Serbíu í kvöld en Þórir er á annarri skoðun. „Það var ekki mikið um góðan sóknarleik í leik Íslands og Króatíu. Varnarleikur beggja liða var ekkert sérstakur og Króatar voru ekki sannfærandi þrátt fyrir að þeir hafi sigrað," segir Þórir í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Þórir landaði gullverðlaunum sem þjálfari norska kvennalandsliðsins á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Brasilíu í desember s.l. „Það vantar tvo lykilmenn í íslenska liðið (Ólaf Stefánsson og Snorra Stein Guðjónsson). Þar að auki hefur Ingimundur Ingimundarson verið meiddur. Íslendingar eiga í vandræðum með varnarleikinn. Noregur er með betri markvörð og það eitt getur orðið til þess að Noregur vinni. Leikur liðsins þarf að vera jafnari en þeir sýndu gegn Slóvenum. Ísland mun lenda í erfiðleikum ef vörnin og markvarslan verður góð – líkt og í byrjun og lok leiksins gegn Slóvenum." Að mati Þóris eru Íslendingar með yfirhöndina í tveimur stöðum á vellinum. „Alexender Petersson er betri en Christoffer Rambo. Guðjón Valur Sigurðsson er í sérflokki í vinstra horninu. Aron Pálmarsson þarf að spila betur en hann gerði gegn Króatíu." Þórir er í vafa um með hvoru liðinu hann mun halda í leiknum í kvöld. „Ég á ekki í erfiðleikum með að gleðjast, hvernig sem leikurinn fer. Ég vona bara að leikurinn verði skemmtilegur," segir Þórir. Norðmenn hafa ekki lagt Ísland að velli á stórmóti frá því að Kjetil Strand skoraði 19 mörk gegn Íslandi á EM í Sviss árið 2006. Ísland vann Noreg á EM árið 2010 og einnig á HM í Svíþjóð á síðasta ári, 29-22. Leikurinn hefst kl. 19.10 og verður bein textalýsing frá leiknum á Vísi þar sem tölfræðin úr leiknum uppfærist í rauntíma.
Handbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira