Handbolti

Pólverjar unnu Dani - Danir stigalausir inn í milliriðilinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Pólverjar unnu eins marka sigur á Dönum, 27-26, í lokaleik þjóðanna í A-riðli á EM í handbolta í Serbíu í dag en það má segja að þarna hafi verið á ferðinni fyrsti leikur liðanna í milliriðli. Bæði lið voru komin áfram og stigin úr leiknum fylgja þeim því inn í milliriðilinn. Danir fóru illa að ráði sínu í þessum leik því þeir náðu mest fimm marka forskoti í seinni hálfleiknum og á lokakafla leiksins klúðruðu þeir góðri stöðu.

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu leikinn og komust vel frá erfiðum leik. Danir voru ekki alltof sáttir í leikslok en þeir spiluðu mjög óskynsamlega á lokakaflanum og geta sjálfum sér um kennt.

Grzegorz Tkaczyk skoraði 7 mörk fyrir Pólverja og Michal Jurecki var með 6 mörk. Besti maður liðsins var þó markvörðurinn Marcin Wichary sem varði alls 17 skot og 50 prósent skota sem á hann komu. Thomas Mogensen skoraði mest fyrir Dani eða fjögur mörk.

Danir skoruðu tvö fyrstu mörkin í leiknum en Pólverjar jöfnuðu strax og síðan var jafnt á næstu tölum þar til að Danir skoruðu fimm mörk í röð og komust í 11-7. Danir voru með gott forskot í framhaldi af þessum flotta kafla og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 14-10. Niklas Landin varði 9 skot í fyrri hálfleiknum.

Pólverjar skoruðu tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks og minnkuðu muninn í tvö mörk, 14-12 en Danir voru fljótir að komast fimm mörkum yfir, 17-12. Pólska liðið var þó ekkert á því að gefast upp.

Pólverjar náðu frábærum kafla um miðjan seinni hálfleikinn og breyttu þá stöðunni úr 14-19 í 21-21 á aðeins tíu mínútum. Lars Christiansen lét Marcin Wichary verja frá sér tvö víti á þessum kafla.

Danir voru áfram með frumkvæðið og náðu aftur tveggja marka forskoti en Pólverjar voru ekkert á því að gefa sig og lokamínútur leiksins voru æsispennandi.

Danir komust einu marki yfir í 25-24 og voru síðan með boltann einum manni fleiri. Pólverjar náðu þá tveimur hraðaupphlaupsmörkum í röð, manni færri, og komust yfir í 26-25.

Danir létu Marcin Wichary síðan verja frá sér einu sinni enn og Michal Jurecki nánast innsiglaði sigur Pólverja með því að koma þeim í 27-25. Hans Lindberg minnkaði muninn í leikslok en það var ekki nóg og Pólverjar fögnuðu mikilvægum sigri.

Úrslit og staðan í öllum riðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×