Völva 2013: Jörð mun skjálfa 21. desember 2012 07:00
Árið 2013 heilsar okkur með heldur aðgerðalitlu veðri, og verður þannig sennilega allan janúarmánuð, en þá breytir um og margar krappar lægðir eiga eftir að lenda hjá okkur í febrúar og mars. Það verður sem sagt umhleypingasamt í febrúar og mars en fremur hlýtt hér sunnanlands. Í öðrum landshlutum verður mikill snjór enda norðlægar áttir ríkjandi meirihluta vetrar.Snjóflóð Ég er hrædd um að snjóflóð verði sem tekur mannslíf, mér sýnist það vera á Vestfjörðum norðanverðum. Þar sem veður verða rysjótt verður einnig erfitt fyrir sjómennina að stunda sína vinnu og svo eru vandræði með fiskveiðistjórnun sem á eftir að hafa miklar afleiðingar til hins verra víða um land, einkum í hinum smærri byggðarlögum. En þegar gefur mun vel veiðast og verð á fiski verður betra en oft áður. Kvótamálin fara í endurskoðun hjá nýrri ríkisstjórn. Aflaheimildum verður breytt þannig að menn mega veiða fyrir sig og sína án vandkvæða. Ríkið mun svo selja aflaheimildir að hluta. Eftir árið fer svo allt þetta kerfi í endurskoðun og kemur breytt og bætt þaðan í febrúar 2014.Hlýtt sumar Tíðarfar sumarsins verður misjafnt en sumarið í heild sinni verður hlýtt, en kemur seint á Norðurlandi og Vestfjörðum. Vestan- og sunnanlands verður rakt og hlýtt vor, en sólin skín má segja í allt sumar og fá Sunnlendingar sannkallað sumar, hlýtt en mætti vera meiri væta á köflum. Fyrir norðan og vestan verða júlí og ágúst sólríkir og nokkuð hlýir en júní kaldur og þurr. Á Austurlandi verður einnig gott um miðbik sumarsins, en ansi mikil úrkoma og þungbúið veður yfir stóran hluta sumars. Árið endar með miklum veðurhvelli, það verður bæði hvasst og mikil ofankoma. Mér sýnist mannvirki vera þar í hættu og eitthvað verður um rafmagnsleysi yfir áramótin.Jörð mun skjálfa Eldsumbrot verða undir sjó og koma ekki til með að valda skaða hjá okkur að neinu ráði. Ég sé ekki eld koma upp á landi, en þó er hugsanlegt að það gerist í lok árs 2013 og verða þá nokkuð mikil eldsumbrot. Jörð mun skjálfa svo til í öllum landshlutum á árinu og mér sýnist að verði nokkuð stór skjálfti, held að hann tengist norðausturhorninu en það verður ekki mikið tjón sýnist mér og engin mannslíf í húfi þar.Banaslysum í umferðinni fækkar Banaslys í umferðinni verða færri á árinu 2013 en mörg undanfarin ár. Ekki dregur þó bensínverð úr akstri landsmanna, sem ferðast meira innanlands en oft áður. Einnig aukast enn ferðalög útlendinga á eigin vegum um Ísland þannig að í heild verður umferð á vegum úti meiri en verið hefur að minnsta kosti undanfarin tvö ár. Stórt sjóslys sé ég í mars, þar verður manntjón. Eldsvoðar verða tíðir og ekki færri en á síðastliðnu ári. Það mun kosta að minnsta kosti tvö mannslíf. Það er sýnist mér á austanverðu landinu.Völva 2013: Einn eitt grínið hjá Jóni Gnarr.
Völva 2013 Mest lesið Hvað veistu um... fugla? Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira