Haust við Tjörnina valin besta myndin 5. október 2012 00:30 Sigurmyndin. Hér til hliðar má sjá fleiri gæðamyndir sem voru sendar inn og fyrir neðan má sjá efstu myndirnar í keppninni.
Haustið var þema ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins að þessu sinni. Fjölmargar myndir bárust og sigurvegari varð Þórlindur Kjartansson með myndinni Haust við Tjörnina. Hann hlýtur í verðlaun 22" sjónvarpstæki frá Heimilistækjum. Önnur og þriðju verðlaun fá Unnar Gísli Sigurmundsson og Inga Vala Birgisdóttir og hlýtur hvort þeirra leikhúsmiða fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Dómnefnd skipuðu Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari á Fréttablaðinu, Ólafur Stephensen ritstjóri og Arndís Þorgeirsdóttir fréttastjóri. Hér fyrir neðan má sjá efstu myndirnar í keppninni og hér fyrir ofan má sjá fleiri gæðamyndir sem voru sendar inn. 1. sæti - Sendi myndina í bríaríiTígulegur svanur á Tjörninni í Reykjavík með fallega haustliti í bakgrunni.Mynd/Þórlindur KjartansonGlæsilegt! Þetta erum við feðgarnir ánægðir með," sagði Þórlindur Kjartansson, sigurvegari í ljósmyndasamkeppninni, þegar honum voru tilkynnt úrslitin. Mynd hans heitir Haust við Tjörnina og Þórlindur hefur þetta að segja um tilurð hennar: "Það var frí í leikskólanum hjá syninum, Antoni Hauki, þennan fallega haustdag í síðustu viku og við fórum í smá leiðangur og reyndum að taka skemmtilegar myndir. Svo ákvað ég bara í bríaríi að prófa að senda myndina inn í keppnina, átti alls ekki von á því að vinna." Þórlindur segist vera byrjandi í ljósmyndalistinni, hann sé nýbúinn að eignast nýja myndavél og sé bara að fikta, en sigurinn verði honum hvatning til að halda áfram. 2. sætiSigurmundur og Sigríður í Laugardalnum.Mynd/Unnar Gísli Sigurmundsson"Konan mín, Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir, á allan heiðurinn af þessari mynd," segir Unnar Gísli Sigurmundsson, sem hreppti annað sætið. "Hún stillti sér og syni okkar, Sigurmundi Gísla, upp og sagði mér hvenær ég ætti að smella af. Það er hún sem er myndasmiðurinn á heimilinu, ég er bara amatör." Myndin er tekin í Laugardalnum í Reykjavík. 3. SætiHaust í sveitinniMynd/Inga Vala"Þetta er tekið í Eyjafirðinum, við Hrafnagil," segir Inga Vala Birgisdóttir, sem hreppti þriðja sætið. "Þetta er blessuð Hrafnagilsbelja. Ég fer mikið út að ganga með hundana mína og tek þá myndavélina með og reyni að fanga stemninguna í kringum okkur. Það hefur greinilega tekist vel núna." 4.-5. sætiVeturinn minnir á sig.Mynd/Arnar Bergur GuðjónssonVeturinn minnir á sig nefnist þessi mynd Arnars Bergs Guðjónssonar sem lenti í 4.-5. sæti. "Þessi er tekin á Þingvöllum klukkan 6 að morgni um síðustu helgi," segir Arnar. "Það var stórkostlegt að fylgjast með því þegar gróðurinn var að lifna við eftir næturkuldann." 4.-5. sætiHaust í Þórsmörk.Mynd/Guðríður Margrét GuðmundsdóttirHaust í Þórsmörk nefnist þessi mynd Guðríðar Margrétar Guðmundsdóttur sem hreppti 4.-5. sætið. "Ég var mjög heppin að ná þessari mynd," segir Guðríður. "Veðrið var mjög sérstakt þennan dag og birtan ótrúleg."
Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Sjá meira