Vill hámark á gjaldskrá dagforeldra Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. september 2012 20:46
Kópavogsbær vill setja hámarksgjald á þjónustu dagforeldra í bænum. Dæmi er um að foreldrar hafi greitt ríflega 90 þúsund krónur fyrir mánuð hjá dagforeldri í bænum sem er tvöfalt meira en bærinn telur æskilegt. Kópavogsbær hefur undanfarið staðið í samningaviðræðum við dagforeldra í bænum um að hækka greiðslur til þeirra í staðin fyrir það að þeir skuldbindi sig til að halda gjaldi hjá sér innan ákveðins hámarks. „Hins vegar ætlum við núna að hækka greiðslur sem við borgum með hverju barni úr 35 upp í 45 þúsund krónur en á sama tíma þá vildum við gera og viljum gera samkomulag við dagmæður, eða dagforeldra, sem er þá þannig að það er ákveðið hámark og í okkar tilviki þá erum við að horfa á 90 þúsund krónur. Þannig að heildargreiðsla foreldranna verði í rauninni 45 þúsund krónur og bærinn borgi 45 þúsund krónur á milli," segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. Algengt er að foreldrar séu í dag að greiða á bilinu 45 til 65 þúsund krónur á mánuði fyrir pláss hjá dagforeldrum í bænum. Einstaka dæmi eru þó um að dagforeldar séu að rukka foreldrana meira. Það á sérstaklega við í hverfum þar sem mörg börn búa og mikil eftirspurn er eftir plássum hjá dagforeldrum. Þannig ræddi fréttastofa við foreldra í dag sem voru rukkaðir um 90 þúsund krónur fyrir pláss hjá dagforeldri sem er tvöfalt meira en það sem Kópavogsbær vill sjá. „Við erum náttúrulega að mælast til þess að gjaldið sé eitthvað svona sem er eðlilegt fyrir báða aðila og við teljum það að 90 þúsund krónur geti verið sú upphæð sem er ásættanleg bæði fyrir foreldrana og fyrir dagforeldrið," segir Ármann.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira