Mismunun sögð ríkja í skjóli laga um stjórnun fiskveiða 8. júní 2012 08:00 Þeir Jón Steinn Elíasson, Gunnar Örlygsson og Ólafur Arnarson voru frummælendur á fundi SFÚ í gær. Fréttablaðið/Stefán
Sjálfstæðar fiskvinnslur gagnrýna að ekkert í fiskveiðistjórnunarfrumvarpi lúti að því að jafna samkeppnisstöðu vegna hráefniskaupa. Mismunandi reglur um kaup á afla halli á fiskverkanir án útgerða. Vilja fá allan fisk á markað. Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) telja að ef fiskveiðistjórnunarfrumvarpið sem liggur nú fyrir Alþingi verði óbreytt að lögum, gæti það markað endalok fiskmarkaða og þar af leiðandi reksturs sjálfstæðra fiskverkana. Þær séu að langmestu leyti háðar mörkuðum um hráefni og í núverandi kerfi þrífist mismunun. Á fundi SFÚ í gær gagnrýndi Jón Steinn Elíasson, formaður samtakanna, það að ekki væri minnst á breytingar á fyrirkomulagi fiskmarkaða í frumvarpinu. Um 2.500 störf hjá á fimmta tug aðildarfyrirtækja SFÚ eru í hættu, samkvæmt skýrslu Ólafs Arnarsonar hagfræðings, sem kynnt var á fundi samtakanna í gær. Þeim er áætlað að fylgi um 7.500 afleidd störf sem einnig væri ógnað. „Krafa okkar er tvíþætt“, sagði Gunnar Örlygsson, hjá AG Seafood í Reykjanesbæ, en hann var meðal frummælenda á fundinum. „Í fyrsta lagi viljum við fá fisk inn á fiskmarkaðina með því að skylda útgerðina til að landa ákveðnu hlutfalli af fiski, helst öllum, á innlenda fiskmarkaði.“ Með því segir Gunnar að megi rétta hlut sjálfstæðrar fiskvinnslu sem hafi hingað til þurft að greiða 30 til 40 prósentum hærra verð fyrir fisk á markaði en vinnslur útgerðarmanna greiði fyrir fisk af sínum skipum. „Það er með ólíkindum að hið opinbera skuli styðja þetta fyrirkomulag og leyfa samkeppnismismunun að þrífast í skjóli laganna.“ Seinni krafa SFÚ lúti að því að allur fiskur sem hingað til hefur verið settur í gáma og fluttur úr landi, fari nú á markað. Gunnar sagði tugi þúsunda tonna af fiski fara óunnin úr landi með þessum hætti í stað þess að fara til vinnslu hér á landi. Í ríkjandi atvinnuástandi sé „með ólíkindum“ að stjórnvöld hafi ekki gripið í taumana. „Íslensk fiskvinnsla muni þá njóta þess lágmarksréttar að fá að bjóða í íslenskan fisk.“ Gunnar sagði það sýna fram á ábyrgðarleysi stjórnvalda að í frumvörpum ríkisstjórnarinnar skuli ekki koma fram breytingartillaga um verðmyndunarmál og fiskmarkaðsmál. Jón Steinn sagði breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu þegar hafa haft þau áhrif að stóru útgerðarfyrirtækin séu síður að leigja frá sér kvóta og það skili sér í minna fiskmagni inn á markaðina. Aðspurður um aðgerðir útvegsmanna síðustu daga og vikur sagði Jón Steinn að um alvarlegt mál væri að ræða. „Við höfum ekki haft neitt hráefni til að vinna úr síðustu daga nema úr strandveiðunum. En þetta sýnir okkur hvað LÍÚ er sterkt. Það getur þarna sett ríkisstjórnina upp við vegg og það er ekki góð þróun.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira