Nefndirnar ætla að skila í haust 8. júní 2012 09:00 Önnur nefndin á að varpa sem skýrustu ljósi á aðdraganda og orsakir rekstrarerfiðleika íslenskra sparisjóða sem leiddu meðal annars til gjaldþrots margra þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna mun skila Alþingi lokaskýrslu í fyrsta lagi þann 1. september næstkomandi. Nefndarmaður á þó frekar von á því að skilin dragist fram eftir árinu 2012. Í þingsályktunartillögu um skipun rannsóknarnefndarinnar segir að hún eigi að „skila forseta Alþingis skýrslu eigi síðar en 1. júní 2012 um rannsóknina ásamt þeim samantektum og úttektum sem nefndin ákveður að láta vinna í þágu rannsóknarinnar.“ Bjarni Frímann Karlsson, lektor í viðskiptafræði, sem situr í nefndinni segir það hafa dregist í þrjá mánuði að skipa nefndina frá því að þingsályktunin var samþykkt. „Við vorum því í raun ráðin frá 1. september og ráðin til árs. Það er erfitt að segja til um það núna hvenær við ljúkum störfum nákvæmlega. Ég á von á að það dragist eitthvað aðeins fram eftir ári.“ Í september 2011 var líka skipuð nefnd til að rannsaka starfsemi Íbúðalánasjóðs frá árinu 2004 og til ársloka 2010. Í þingsályktunartillögu vegna þeirrar skipunar segir að hún skuli skila „um hana [rannsóknina] skýrslu til Alþingis innan sex mánaða frá skipun nefndarinnar“. Hún hefði því átt að skila skýrslu sinni í byrjun mars síðastliðins. Sigurður Hallur Stefánsson, fyrrverandi héraðsdómari og formaður nefndarinnar, segir stefnt að því að skila skýrslu til Alþingis í haust. „Það er svolítið erfitt að ákveða endapunkt. Þetta verk er ekki þannig að það sé auðvelt að segja til um hann. En það er verið að vinna á fullu og stefnan er sett á að skila niðurstöðum í haust.“ - þsj
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Skotárás við Álaborg Erlent Fleiri fréttir Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Sjá meira