Innlent

Þingmaður missti bílpróf vegna ölvunaraksturs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Höskuldur Þórhallsson mun þiggja far hjá vinum og vandamönnum næstu dagana.
Höskuldur Þórhallsson mun þiggja far hjá vinum og vandamönnum næstu dagana.
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi missti bílprófið nýlega eftir að hann var tekinn ölvaður á bíl. Þetta kemur fram í blaðinu Vikudegi sem kom út í gær. Höskuldur missti bílprófið í átta mánuði.

„Ég gerði mikil mistök, sem fólust í því að setjast of snemma undir stýri eftir að hafa neytt áfengis. Mér finnst rétt að segja frá því. Lögreglan stöðvaði mig, það var tekin blóðprufa og ég missti bílprófið. Ég hafði verið á fundaferð um kjördæmið og fékk mér rauðvín í lok dags. Ég veit að fólk gerir meiri kröfur til mín sem alþingismanns, ég er miður mín yfir þessu en þetta er eitthvað sem ég verð að lifa með. Sem betur fer á ég góða að sem munu aðstoða mig á ferðum mínum um kjördæmið, ég mun því ekki láta þessi mistök hafa áhrif á störf mín," segir Höskuldur Þórhallsson.

Höskuldur er ekki fyrsti þingmaðurinn sem er sviptur bílprófi tímabundið vegna ölvunarakstur því það sama kom fyrir Sigurð Kára Kristjánsson þáverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins þegar hann var fyrst kosinn á þing sumarið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×