Aukning þorskafla skapar 8 milljarða tekjur 8. júní 2012 18:35
Aukning þorskafla um 19 þúsund tonn á næsta fisveiðiári skapar þjóðinni yfir 8 milljarða í auknum útflutningstekjum. Þorskaflinn stefnir í 250 þúsund tonn á næstu árum segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunar. Hafrannsóknarstofnun leggur til að þorskkvótinn verði aukinn um 19 þúsund tonn í 196 þúsund tonn sem skilar þjóðarbúinu rúmum 8 milljörðum króna í útflutningsverðmæti samkvæmt útreikningum LÍÚ. Þorskstofninn hefur farið stækkandi undanfarin ár eftir að veiðihlutfall var lækkað í tuttugu prósent og hefur hrygningarstofn hans eki verið stærri frá árinu 1964. „Með þessu áframhaldi og með þeim efnivið sem núna er í stofninum, og mun skila sér inn í veiðina á allra næstu árum, þá munum við sjá það að aflinn mun á næstu árum fara verulega yfir 200 þúsund tonn, við erum jafnvel að tala um 250 þúsund tonn á árið 2016," segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar. Á móti kemur minnkun á ráðlögðum ýsukvóta um 5 þúsund tonn og þar með 4 milljarða tekjuskerðingu. Jóhann segir ástand ýsustofnsins vera áhyggjuefni, framundan séu lélegir árgangar og því nauðsynlegt að draga saman veiði svo stofninn fari ekki undir hættumörk. Aðrar tegundir eru nokkuð stöðugar, ráðlagður ufsakvóti minnkar lítillega, karfi eykst á móti og mjög bjartar horfur eru fyrir síldina þar sem aflahámark er metið í 67 þúsund tonnum og skilar það 7 milljörðum í auknum útflutningstekjum. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir vöxt síldarstofnsins mjög jákvæðar fréttir. „Við vorum búin að byggja þennan stofn úr nánast engu, með því að fara varlega í veiðarnar og vorum komin upp í 150 þúsund tonn þegar við fengum þessa sýkingu, sem er náttúrulega bara náttúrulegt fyrirbæri. Núna erum við að koma aftur til baka þannig það er gríðarlega jákvætt.
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Hafi tekið barnsmóður sína hálstaki Fjöldahandtökur á Íslandi og prófessor varar við tengingu bóta við vísitölu Bein útsending: Einföldun Evrópuregluverks Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Nálgumst 400 þúsund og um átján prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Færri krakkar á samfélagsmiðlum en fleiri vingast við gervigreind Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Óvíst hversu mörg börn sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu Ók bifreið utan í þrjár aðrar á gatnamótum „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Sjá meira