Innlent

Vindhviður í Öræfasveit ná fellibylsstyrk

Stormur er í Öræfasveitinni og hviðurnar allt að 50 m/s fram á miðjan dag, en lægir síðan mikið. Þessi vindhraði í hviðunum samsvarar fellibylsstyrk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Við Lómagnúp verða vindhviður 30-40 m/s þar til síðdegis. Gera má ráð fyrir að sandfok verði á Skeiðarársandi meira og minna í allan dag eða þar til fer að rigna á þeim slóðum.

Austanlands kemur úrkomusvæði úr austri. Fram eftir morgni verður snjókoma og skafrenningur , suður í Breiðdal og lítið skyggni en hlánar þegar kemur fram á daginn með rigningu á láglendi, neðan um 200 metra austan- og norðaustanlands. Þá verður flughált sums staðar á vegum.

Á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum má reikna með vaxandi skafrenningi og kófi eftir því sem hvessir af norðaustri ásamt éljagangi og snjókomu þegar frá líður.

Hálkublettir eru á Höfuðborgarsvæðinu, á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir eða hálka er víða á Suðurlandi. Hálka og skafrenningur er frá Hellu og að Markarfljóti. Hálkublettir eru á Suðurstrandarvegi.

Óveður er undir Hafnafjalli og við Hafursfell. Hálkublettir eru á Bröttubrekku. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Skafrenningur er í Svínadal.

Á Vestfjörðum er hálka og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og hálka og óveður á Þröskuldum. Hálkublettir og óveður er á Hjallaháls, snjóþekja og stórhríð á Klettsháls.

Á Norðurlandi er þæfingsfærð og skafrenningur á Þverárfjalli, í Héðinsfirði, Víkurskarði og á Fljótsheiði. Þæfingsfærð og skafrenningur er frá Ketilás að Siglufirði og snjóþekja og stórhríð frá Hofsós að Ketilás. Hálka og skafrenningur er í Húnavatnssýslum og á Vatnsskarði. Snjóþekja eða hálka og snjókoma og éljagangur er á flestum öðrum leiðum og verið að hreinsa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×