Innlent

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Jói Fel, formaður LABAK, afhenti Gunnhildi Óskarsdóttur, formanni Göngum saman, styrkinn.
Jói Fel, formaður LABAK, afhenti Gunnhildi Óskarsdóttur, formanni Göngum saman, styrkinn. mynd/si
Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini dagana 10. til 13. maí. Átakið var til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.

Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar buðu upp á brjóstabollur með kaffinu um mæðradagshelgina með þessum árangri.

Félagið var stofnað haustið 2007 og hefur síðan veitt um 22 milljónum króna til rannsókna. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×