Innlent

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu var fylgst með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima.

„Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 22-35%," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×