Sinna nýsköpun og eftirliti á Breiðafirði 18. júní 2012 06:30 Flóki Báturinn sem LHG hefur til afnota er ætlaður til björgunar- og löggæslustarfa. Starfsmenn LHG miðla af áralangri reynslu sinni við að fínpússa hönnunina.f réttablaðið/stefán
Nýsköpunarfyrirtækið OK Hull hefur sótt um einkaleyfi á bátsskrokk sem nýtist öllum tegundum báta og skipa, stórum sem smáum. Landhelgisgæslan kemur að nýsköpunarvinnunni með að nýta bát til eftirlits á Breiðafirði. Landhelgisgæslan og Fiskistofa hafa frá því í vor unnið að eftirliti með veiðum skipa á Breiðafirði. Til þess er nýttur bátur sem Landhelgisgæslan hefur í prófunum fyrir íslenska nýsköpunarfyrirtækið OK Hull, sem hefur sótt um einkaleyfi á nýju skrokklagi sem fyrirtækið hefur þróað allt frá 2005. Á Breiðafirði hefur smábátum fjölgað mikið með tilkomu strandveiða og mun meiri sókn er á grásleppuveiðar. Á undanförnum dögum hafa hundruð báta verið á sjó innan íslenska hafsvæðisins og var met sett síðastliðinn miðvikudag þegar samtals 1.180 skip og bátar voru í fjareftirlitskerfum. Vegna þessa þótti ástæða til að taka upp sérstakt eftirlit. Eftirlitinu er þannig háttað að eftirlitsmenn Fiskistofu fara um borð í bátana, fara yfir veiðarfæri, afla, lögskráningu, samsetningu afla og afladagbækur en hjá grásleppubátum er einnig kannaður netafjöldi, sem má vera 100 net á hvern lögskráðan skipverja um borð. Landhelgisgæslan hefur umsjón með bátnum og leggur til mannskap og búnað vegna hans. Það sérstaka við þetta eftirlit er að á sama tíma tekur Gæslan þátt í nýsköpunarverkefni með prófunum á nýjum bát frá fyrirtækinu OK Hull. Íslenska fyrirtækið OK Hull afhenti nýverið séraðgerða- og sprengjueyðingasviði LHG frumgerð að átta metra harðbotna slöngubát sem er nýttur til eftirlitsins, og verður jafnframt prófaður við ýmsar aðstæður á næstu mánuðum. Að sögn Gæslunnar hefur báturinn reynst í heildina litið vel í mjög erfiðum aðstæðum. Tillögur Landhelgisgæslunnar verða síðar teknar til greina í framleiðsluferlinu.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira