Hagsmunir bæjarfulltrúa skráðir opinberlega Eysteinn Eyjólfsson skrifar 22. nóvember 2011 06:00 Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ leggja fyrir reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og trúnaðarstörfum þeirra fyrir bæjarstjórnarfund þriðjudaginn 22. nóvember. Bæjarstjórn setti sér siðareglur á síðasta fundi eins og gert hefur verið í nokkrum sveitarfélögum og nú leggjum við til í rökréttu framhaldi að bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar, fyrstir bæjarfulltrúa á Íslandi, skrái hagsmuni sína fyrir opnum tjöldum á vefsíðu sveitarfélagsins. Reglurnar um hagsmunaskráningu taka mið af reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings sem voru samþykktar vorið 2009. Samkvæmt reglunum skulu bæjarfulltrúar m.a. skrá launaða starfsemi aðra en setu í bæjarstjórn, skrá launaða stjórnarsetu sem kosið er til að af bæjarstjórn, skrá launaða stjórnarsetu í einkareknum eða opinberum félögum og gera grein fyrir fjárhagslegum stuðningi, gjöfum, utanlandsferðum og eftirgjöfum eftirstöðva skulda. Þá skulu bæjarfulltrúar skrá upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög - óháð því hvort þessi störf eru launuð eða ekki. Skráning þessi er ætluð íbúum og kjósendum í Reykjanesbæ til upplýsingar og til þess að auka gagnsæi í störfum bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Það er ein af grundvallarreglum í stjórnmálum lýðræðisríkja að kjörnir fulltrúar taka ákvarðanir um hvaða hagsmuni eigi að taka fram yfir aðra, hvernig eigi að forgangsraða. Þess vegna er mikilvægt að kjósendur hafi upplýsingar um það hvar hagsmunir bæjarfulltrúa liggja, sérstaklega þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir á erfiðum tímum eins nú í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Bæjarbúum og öðrum áhugamönnum um betri stjórnmál er bent á að kynna sér reglurnar á xsreykjanesbaer.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Sjá meira
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ leggja fyrir reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ og trúnaðarstörfum þeirra fyrir bæjarstjórnarfund þriðjudaginn 22. nóvember. Bæjarstjórn setti sér siðareglur á síðasta fundi eins og gert hefur verið í nokkrum sveitarfélögum og nú leggjum við til í rökréttu framhaldi að bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar, fyrstir bæjarfulltrúa á Íslandi, skrái hagsmuni sína fyrir opnum tjöldum á vefsíðu sveitarfélagsins. Reglurnar um hagsmunaskráningu taka mið af reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings sem voru samþykktar vorið 2009. Samkvæmt reglunum skulu bæjarfulltrúar m.a. skrá launaða starfsemi aðra en setu í bæjarstjórn, skrá launaða stjórnarsetu sem kosið er til að af bæjarstjórn, skrá launaða stjórnarsetu í einkareknum eða opinberum félögum og gera grein fyrir fjárhagslegum stuðningi, gjöfum, utanlandsferðum og eftirgjöfum eftirstöðva skulda. Þá skulu bæjarfulltrúar skrá upplýsingar um stjórnarsetu og önnur trúnaðarstörf fyrir hagsmunasamtök, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félög - óháð því hvort þessi störf eru launuð eða ekki. Skráning þessi er ætluð íbúum og kjósendum í Reykjanesbæ til upplýsingar og til þess að auka gagnsæi í störfum bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Það er ein af grundvallarreglum í stjórnmálum lýðræðisríkja að kjörnir fulltrúar taka ákvarðanir um hvaða hagsmuni eigi að taka fram yfir aðra, hvernig eigi að forgangsraða. Þess vegna er mikilvægt að kjósendur hafi upplýsingar um það hvar hagsmunir bæjarfulltrúa liggja, sérstaklega þegar taka þarf erfiðar ákvarðanir á erfiðum tímum eins nú í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Bæjarbúum og öðrum áhugamönnum um betri stjórnmál er bent á að kynna sér reglurnar á xsreykjanesbaer.is.
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun