Ólafur Ragnar: Dorrit lítur svona vel út því hún hefur aldrei reykt 24. febrúar 2011 16:18 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. „
Við Dorrit eigum það sameiginlegt eins og margt annað, að við höfum hvorugt okkar nokkru sinni reykt," sagði Ólafur Rangar Grímsson, forseti Íslands, í erindi sem hann flutti í Lækjarskóla í Hafnarfirði á dögunum. Forsetahjónin heimsóttu skólann vegna þess að á síðasta ári vann skólinn Íslensku menntaverðlaunin og komu hjónin í skólann til að kynna sér starfið sem þar fer fram. Í myndbandi sem ber yfirskriftina „Fjölmiðladrottning í einn dag" sem Fjölmiðladeild Flensborgar og Hafnarfjarðarbær standa nú að, segir bæjarfulltrúinn Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, frá jákvæðum fréttum í bænum. Í heimsókn forsetahjónanna ræddi forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar meðal annars um mikinn og góðan árangur sem náðst hefur í forvarnarstarfi skólans. Í ræðu sem Ólafur Ragnar hélt í skólanum segist hann aldrei hafa reykt, og ekki heldur eiginkona hans Dorrit Moussaieff. „Ég held að Dorrit líti ennþá svona vel út, þó hún sé nú að eldast, meðal annars því hún hefur aldrei reykt," sagði forsetinn og bað því næst Dorrit um að standa upp og sýna viðstöddum hversu vel hún liti út og skellti upp úr. Dorrit sat þó sem fastast. Hægt er að sjá myndbandið hér. Brot úr ræðu Ólafs Ragnars kemur fyrir þegar sjö mínútur eru liðnar af myndbandinu.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira