Dagbjartur jarðsunginn 5. október 2011 11:19 Fráfall Dagbjarts var sviplegt og líklega er óhætt að segja að allri þjóðinni hafi verið verulega brugðið.
Dagbjartur Heiðar Arnarson verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag en hann lést á heimili sínu 23. september síðastliðinn, aðeins ellefu ára gamall. Sviplegt fráfall Dagbjarts var þungt áfall fyrir Sandgerði, og í raun var allri þjóðinni verulega brugðið. Drengurinn hafði átt við andlega annarmarka að stríða og var lagður í mikið einelti. Í Morgunblaðinu í dag birtast minningagreinar um Dagbjart. Þar minnast fjölskyldumeðlimir hans með hjartnæmum hætti. Þannig skrifa Guðrún, Elín, Gunnlaugur Yngvi, Guðný Björg og Ronja: „Það er eins og gerst hafi í gær að hringingin kom og við beðnar að koma að passa Söndru því þú varst á leiðinni í heiminn og þú svo sannarlega dreifst þig því þú nánast fæddist á Miðnesheiðinni. Svo ertu bara farinn aftur, hversu réttlátt er það?" Föðursystir Dagbjarts skrifar grein þar sem hún talar um grimmd lífsins. „Elsku hjartagosinn minn. Ég er ekki enn farin að trúa þessu og ég veit að ég mun aldrei skilja hvernig lífið gat verið svona grimmt við svona fallegan lítinn strák. Mig langar svo að fá að taka utan um þig einu sinni enn og segja þér að mér þyki vænt um þig." Og svo virðist sem líf Dagbjarts hafi oft verið markað grimmri baráttu fyrir lífinu sem lítil hjörtu ráða ekki alltaf við. Þannig skrifar föðursystir Dagbjarts: „Þú þurftir að berjast fyrir lífi þínu um leið og þú tókst fyrsta andardráttinn og við vissum það öll að við þyrftum að hugsa vel um hjartað þitt. Stóra, fallega hjartað þitt, sem var svo ofsalega brothætt." Athöfnin hefst klukkan tvö í dag.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Fleiri fréttir Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Sjá meira