Lífið

Nína Dögg ráðin til að leika Nínu Tryggva

Nína og Nína Nína Dögg leikur nöfnu sína og listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmyndinni Kill the Poet eftir Jón Óttar Ragnarsson.
Nína og Nína Nína Dögg leikur nöfnu sína og listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmyndinni Kill the Poet eftir Jón Óttar Ragnarsson.
„Mér líst rosalega vel á myndina, handritið er æðislegt og þetta er virkilega vel skrifuð og falleg saga hjá honum,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir, sem hefur verið ráðin til að leika listakonuna Nínu Tryggvadóttur í stórmynd Jóns Óttars Ragnarssonar, Kill the Poet. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum munu þau Nick Stahl og Anita Briem leika ljóðskáldið Stein Steinarr og myndlistarkonuna Louisu Matthíasdóttur.

Nína segir það vera mikinn heiður að fá tækifæri til að leika þessa miklu listakonu Íslendinga. „Ég hef ekki áður verið í hlutverki sögulegrar manneskju og undirbúningurinn verður örugglega allt öðruvísi. En maður verður samt að passa sig á að verða ekki eftirherma, þetta er ekki heimildarmynd,“ segir Nína. Hún á von á barni eftir viku og hafði því ekki gefið sér mikinn tíma til að kynna sér lífshlaup listakonunnar.

Nína hyggst hins vegar nýta tímann vel á meðan hún liggur við hlið nýja fjölskyldumeðlimsins. „Þetta er mjög spennandi hlutverk og auðvitað er ég líka pínulítið smeyk við að leika svona goðsagnakennda konu. En þetta er fyrst og fremst áskorun og þau hafa verið yndisleg, Margrét [Hrafnsdóttir] og Jón Óttar,“ segir leikkonan. Eiginmaður hennar, Gísli Örn Garðarsson, hefur einnig samþykkt að leika í myndinni. Ekki hefur þó verið ákveðið hvaða hlutverk hann fer með þar sem ekki liggur fyrir hversu mikinn tíma Gísli hefur vegna anna á öðrum vígstöðum. Samkvæmt upplýsingum frá Margréti er ráðgert að tökur hefjist í Kanada í janúar á næsta ári en þeim verður síðan framhaldið í mars hér á landi. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.