Við höldum með Spáni í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2011 09:31 Mynd/Valli
Í dag fer fram lokaumferð milliriðlakeppninnar á HM í handbolta og mun þá ráðast hvaða sæti Ísland mun spila um í keppninni. Ísland mætir heims-, Evrópu- og Ólympíumeisturum Frakklands í lokaleik milliriðils 1 í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Leiknum verður einnig lýst beint á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Ísland er nú í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig en sú staða gæti komið upp að strákarnir okkar verði öruggir með sæti áður en leikurinn við Frakka hefst. Svo það verði mögulegt verður Spánn að vinna Ungverjaland sem er einnig með fjögur stig. Ísland vann þó Ungverja í innbyrðisviðureign liðanna og er því ávallt ofar í töflunni verði þau jöfn að stigum í lok milliriðlakeppninnar. Ef Ísland, Ungverjaland og Þýskaland verða öll með fjögur stig eftir leiki dagsins verður Ísland efst þeirra með bestan árangur í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða. Þýskaland og Noregur mætast í fyrsta leik dagsins og gæti þýskur sigur þar reynst íslenska liðinu dýrkeyptur. Þýskaland kemst með sigri upp í fjögur stig og gæti ýtt Íslandi niður í fimmta sæti riðilsins ef Ungverjar ná einnig stigi gegn Spánverjum. Þá mun Ísland spila um 9.-10. sæti keppninnar og kæmist þannig ekki inn í umspil um sæti á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012. Ef Ísland nær hins vegar að vinna Frakkland í kvöld skipta aðrir leikir engu máli - sigur gegn Frökkum mun ávallt tryggja okkur þriðja sæti riðilsins og þar með rétt til að spila um 5.-6. sæti mótsins. Liðin sem verða í 2.-7. sæti á HM í Svíþjóð fá þátttökurétt í Ólympíuumspilinu. Möguleikarnir: Ísland í 3. sæti riðilsins (og spilar um 5.-6. sætið á HM) Ísland vinnur Frakkland eða Ísland gerir jafntefli við Frakkland - og Ungverjaland gerir jafntefli eða tapar fyrir Spáni eða Ísland tapar fyrir Frakklandi - og Ungverjaland tapar fyrir Spáni Ísland í 4. sæti riðilsins (og spilar um 7.-8. sætið á HM) Ísland gerir jafntefli við Frakkland - og Ungverjaland vinnur Spán eða Ísland tapar fyrir Frakklandi - og Ungverjar ná stigi gegn Spáni - og Þýskaland vinnur ekki Noreg Ísland í 5. sæti riðilsins (og spilar um 9.-10. sætið á HM) Ísland tapar fyrir Frakklandi - og Ungverjar ná stigi gegn Spáni - og Þýskaland vinnur Noreg
Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira